Kauphöllin
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 78 ›
Söluandvirði útboðs Ísfélagsins átján milljarðar Almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. lauk klukkan tvö í gær, en alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 milljarða króna. Það samsvarar tæplega fjórfaldri eftirspurn. Viðskipti innlent 2.12.2023 09:37
Hlutabréfamarkaðurinn í millibilsástandi Í nóvember hækkaði virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði (svonefnt CAPE-hlutfall) í Kauphöllinni lítillega frá fyrri mánuði, og var 26,1 eftir að hafa verið 24,9 í lok október. Hækkunin stafar af hærra virði félaga að baki OMXI10-vísitölunnar fremur en lækkun hagnaðar. Til samanburðar er CAPE-hlutfallið fyrir bandarísku hlutabréfavísitöluna S&P500 liðlega 31 um þessar mundir. Umræðan 1.12.2023 10:57
IFS verðmetur Ísfélagið um nítján prósentum hærra en útboðsgengi IFS greining verðmetur Ísfélagið 18,5 prósent yfir útboðsgengi í áskriftarbók til almennra fjárfesta og mælir með kaupum í útgerðinni. „Samanburður á verðkennitölum Ísfélagsins við verðkennitölur Brim og Síldarvinnslunnar gefa til kynna að virði Ísfélagsins sé nokkuð sanngjarnt metið í útboðinu.“ Innherji 30.11.2023 12:31
Búast við talsverðum greiðslum á næstu vikum vegna nýrra samstarfsamninga Stjórnendur Alvotech, sem sá lausafé sitt minnka um meira en 110 milljónir dala á þriðja fjórðungi samhliða miklum fjárfestingum, segjast vera í viðræðum við lyfjafyrirtæki um samstarfssamning vegna líftæknilyfjahliðstæðna í þróun hjá félaginu sem geti skilað sér í talsverðum greiðslum undir lok árs. Dræmar sölutekjur ollu vonbrigðum en Alvotech fullyrðir að þær muni taka við sér á yfirstandandi ársfjórðungi þegar lyfin eru hlutfallslega seld meira á mörkuðum þar sem verðlagningin á þeim er hærri. Innherji 30.11.2023 11:00
Stjórnin hafi hagsmuni allra hluthafa að leiðarljósi Stjórn Marel hefur svarað harðri gagnrýni evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital Partners, sem birti í dag opið bréf til stjórnarformannsins. Stjórnin segist hafa ýtrustu hagsmuni allra hluthafa og annarra hagaðila að leiðarljósi. Viðskipti innlent 29.11.2023 20:38
Yfirtökuboðinu var ætlað að hagnast á veikri stjórn Marels og erfiðleikum Eyris Evrópski vogunarsjóðurinn Teleios Capital Partners, einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels með 3,3 prósenta hlut, gagnrýnir harðlega stjórn fyrirtækisins fyrir að hafa ekki gætt að umboðsskyldu sinni gagnvart öllum hluthöfum og segir vanhugsaðar ákvarðanir þáverandi stjórnenda Eyris valda því að fjárfestingafélagið rambi nú á barmi gjaldþrots. Sjóðurinn styður ákvörðun stjórnar að hafna mögulegu tilboði John Bean Technologies en segir þörf á skýrleika um eignarhald Marels, sem hafi ekki reynst farsælt með Eyri sem aðaleigenda, til framtíðar litið. Innherji 29.11.2023 14:34
„Sem betur fór vildi Baader ekki kaupa“ Marel árið 1991 Árið 1991 reyndu forsvarsmenn Marels að fá þýska iðnfyrirtækið Baader, sem þremur áratugum seinna keypti Skagann 3X, til að fjárfesta í íslenska fyrirtækinu en það gekk ekki eftir. „Sem betur fór vildi Baader ekki kaupa!“ segir í nýrri bók um fyrirtækið. „Kaupin hefðu varla verið Marel til góðs,“ sagði fyrrverandi forstjóri félagsins. Innherji 29.11.2023 07:01
Lífeyrissjóðir voru ekki áhugasamir um tilboð JBT í Marel Stjórnendur lífeyrissjóða, sem Innherji ræddi við, voru ekki áhugasamir um óskuldbindandi tilboð bandaríska fyrirtækisins John Bean Technologies Corporation í Marel. Þeim þótti gengið of lágt og óspennandi að fá greitt að stórum hluta með hlutabréfum í erlendu félagi. Gengi Marels lækkað um allt að nærri fjögur prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að stjórn þess hafnaði tilboðinu. Hún er þó opin fyrir betri tilboðum í félagið. Innherji 28.11.2023 10:06
Mögulegt tilboð ekki í þágu hagsmuna hluthafa Marel Stjórn Marel hefur hafnað óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT Corporation varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. Viðskipti innlent 28.11.2023 07:52
Síminn ekki „sloppið undan sölugleði markaðarins“ sem hafi gengið of langt Greinandi verðmetur Símann 57 prósentum hærra en markaðsvirði er um þessar mundir. Á einu ári hefur gengið félagsins lækkað um 20 prósent sem er lítillega meira en lækkun Aðalvísitölu hlutabréfamarkaðarins. „Síminn hefur ekki sloppið undan sölugleði markaðarins og þykir Jakobsson Capital að markaðurinn sé kominn fulllangt fram úr sér sjálfum.“ Innherji 27.11.2023 17:38
Telur norðurslóðir eiga eftir að verða eitt mikilvægasta efnahagssvæði veraldar Vegna landfræðilegrar legu og öflugra innviða er Ísland í kjörstöðu til að nýta sér þau tækifæri sem við blasa í þróun efnahagsuppbyggingar á norðurslóðum, útskýrði Ólafur Ragnar Grímsson á ráðstefnu í London fyrr í þessum mánuði, sem hann telur að sé óðum að verða eitt af mikilvægustu efnahagssvæðum heimsins. Forstjóri Stoða brýndi fyrir erlendum fjárfestum mikilvægi þess að finna „réttan samstarfsaðila“ þegar fjárfest væri á Íslandi og nefndi að vegna sterkrar stöðu íslenska þjóðarbúsins þá ætti gjaldmiðillinn ekki að vera vandamál. Innherji 27.11.2023 11:26
Mestu þyngslin á íslenska markaðnum en tæknirisar tosað upp ávöxtun erlendis Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur lækkað hvað mest á heimsvísu, ásamt markaðnum í Kólumbíu, á meðan ávöxtun hlutabréfa er með ágætum í mörgum kauphöllum erlendis. Viðmælendur Innherja benda á að ekki séu sambærileg félög í íslensku kauphöllinni og hafa verið að leiða hækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Þá hafi starfsumhverfi á Íslandi verið krefjandi með miklum launahækkunum síðustu misseri ásamt mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi, umfram það sem þekkist í öðrum löndum. Innherji 25.11.2023 08:35
Tilboðið í Marel í lægri kantinum Bandarískt fyrirtæki hefur greint frá áhuga sínum á að kaupa Marel. Er mögulegt tilboð 38 prósent hærra en verðmat Marel á íslenskum markaði. Greinandi segir tilboðið þó vera í lægri kantinum. Viðskipti innlent 24.11.2023 11:57
Hugsanlegt tilboð JBT níu prósentum lægra en mat erlendra greinenda Matvælatæknifyrirtækið John Bean Technologies Corporation býður níu prósent lægra verð í Marel en erlendir greinendur meta íslenska félagið á að meðaltali. Verði af tilboðinu myndi JBT greiða 25 prósent í reiðufé og 75 prósent í formi eigin bréfa. Kauphöllin hefur opnað fyrir viðskipti með bréf Marels á nýjan leik. Innherji 24.11.2023 11:06
Bandarískur tilboðsgjafi metur Marel á 363 milljarða króna Marel hefur tilkynnt að John Bean Technologies Corporation (JBT) sé fyrirtækið sem lagði fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:38
Marel rauk upp áður en lokað var fyrir viðskipti Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf í Marel í morgun. Gengi bréfanna rauk upp um tæplega þrjátíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var um óskuldbindandi viljayfirlýsingu um kaup á öllu hlutafé félagins. Opnað hefur verið fyrir viðskiptin á ný. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:24
Kauphöllin stöðvaði viðskipti með Marel eftir 29 prósenta hækkun Marel hækkaði um 29 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að tæknifyrirtækið upplýsti um að því hefði borist óskuldbindandi viljayfirlýsing um mögulegt tilboð í öll hlutabréf þess. Ekki var greint frá mögulegu gengi í viðskiptunum né hver gerði tilboðið. Í kjölfarið lokaði Kauphöllin fyrir viðskipti með bréfin. Innherji 24.11.2023 10:04
Marel tilkynnir um mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu Marel hefur borist óskuldbindandi viljayfirlýsing varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. Frá þessu er greint á vef Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 24.11.2023 06:31
Icelandair áformar að stækka flotann í allt að hundrað vélar fyrir árið 2037 Stjórnendur Icelandair stefna á að flugfélagið vaxi úr 39 flugvélum í 70 til 100 árið 2037, á 100 ári afmæli þess. Framkvæmdastjóri hjá félaginu sagði að markmiðið væri raunhæft en hvort það gangi eftir muni ráðast af markaðsaðstæðum. Forstjóri Icelandair telur hins vegar að of háir umhverfisskattar gætu orðið Þrándur í Götu. Innherji 23.11.2023 16:53
Félag Guðbjargar áformar að selja fyrir um tíu milljarða í útboði Ísfélagsins Fjárfestingafélag Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleigandi Ísfélagsins, mun standa að sölu á miklum meirihluta þeirra bréfa sem verða seld til nýrra fjárfesta í almennu hlutafjárútboði sjávarútvegsfyrirtækisins sem hófst í morgun. Miðað við lágmarksgengið í útboðinu, sem metur Ísfélagið á 110 milljarða, þykir félagið nokkuð hagstætt verðlagt í samanburði við önnur sjávarútvegsfyrirtæki á markaði og verðmöt sem greinendur hafa gert í tengslum við skráninguna. Innherji 23.11.2023 12:04
Ísfélagið verðmetið á yfir 110 milljarða í útboði á um fimmtán prósenta hlut Sjávarútvegsfyrirtækið Ísfélagið, sem varð til við sameiningu Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma um mitt þetta ár, hefur ákveðið að hefja almennt hlutafjárútboð þar sem til stendur að selja tæplega fimmtán prósenta hlut í félaginu. Miðað við lágmarksgengið í tilboðsbók A í útboðinu, sem er beint að minni fjárfestum, er fyrirtækið verðmetið á samtals rúmlega 110 milljarða króna. Innherji 22.11.2023 16:45
Guðmundur Fertram og risasala á Kerecis hlutu viðskiptaverðlaun Þjóðmála Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, var útnefndur viðskiptamaður ársins 2023 á Hátíðarkvöldi Þjóðmála síðastliðinn fimmtudag auk þess sem risasala á fyrirtækinu til alþjóðlega heilbrigðisrisans Coloplast fyrir jafnvirði um 180 milljarða króna var valin viðskipti ársins. Þá hlaut Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, sérstök heiðursverðlaun Þjóðmála fyrir ævilangt framlag sitt til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. Innherji 19.11.2023 14:17
Forstjóri Regins minnkar stöðu sína og tekur á sig tap vegna framvirks samnings Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins, hefur minnkað hlutafjáreign sína í fasteignfélaginu um meira en helming en hún hafði verið í gegnum framvirka samninga. Hann segir við Innherja að það hafi verið vandasöm staða samhliða hækkandi vöxtum og lækkunum á mörkuðum og því ákveðið að losa um hana og „innleysa tapið.“ Innherji 18.11.2023 15:08
Allt grænt í Kauphöllinni Hlutabréf allra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni nema tveggja hækkuðu í verði í dag. Þrjú þeirra hækkuðu um meira en sex prósent og hlutabréf Icelandair hækkuðu mest, eða um 6,45 prósent. Viðskipti innlent 16.11.2023 21:52
Kaldalón mætt á aðalmarkað Nasdaq Iceland Viðskipti með hlutabréf í fasteignafélaginu Kaldalóni hófust á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í morgun. Síðustu ár hefur síðustu ár verið á First North vaxtamarkaðnum. Viðskipti innlent 16.11.2023 12:51
Vægi íslenskra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða ekki verið lægra í þrjú ár Hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða hefur fallið stöðugt undanfarin misseri samhliða meðal annars því að verðlækkanir á mörkuðum hér heima hafa verið mun meiri en þekkist erlendis og er vægi þess eignaflokks núna nokkuð undir meðaltali síðasta áratugs. Með auknum umsvifum lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði á nýjan leik er hlutfall sjóðsfélagalána í eignasöfnum sjóðanna á sama tíma búið að hækka skarpt. Innherji 16.11.2023 12:45
Vilja upplýsa markaðinn betur um fasteignaþróunarverkefni Reita Markaðurinn hefur ekki nógu góða innsýn í umfang þróunareigna Reita. Það er eitt af því sem læra má af samrunaviðræðum við Reginn, segir fjármálastjóri fasteignafélagsins, sem meðal annars á Kringluna og er með í deiliskipulagsferli allt að 418 íbúðir á því svæði. Innherji 14.11.2023 16:04
Staðan á hlutabréfamarkaðnum á mannamáli Hlutabréfamarkaðurinn hefur leikið marga grátt undanfarin misseri og úrvalsvísitalan hrunið um tuttugu prósent á einu ári. Viðskipti innlent 14.11.2023 11:15
Leysti líka til sín bréf Þórðar og fer með nærri tíu prósenta hlut í Eyri Invest Arion fer með nálægt tíu prósenta eignarhlut í Eyri Invest eftir að bankinn leysti sömuleiðis til sín hluta af bréfum í fjárfestingafélaginu sem höfðu verið í eigu Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns til meira en tveggja áratuga, í tengslum við veðkall sem var gert á Árna Odd, son Þórðar og þáverandi forstjóra Marels. Feðgarnir fara nú saman með nokkuð minna en þriðjungshlut í Eyri en hluthafar félagsins, einkum bankar og lífeyrissjóðir, skoða nú að koma að stórri hlutafjáraukningu til að létta á þungri skuldastöðu. Innherji 11.11.2023 16:28
Marel rýkur upp í milljarðaviðskiptum Gengi hlutabréfa í Marel hefur rokið upp um 6,12 prósent í Kauphöllinni það sem af er degi. Viðskipti með bréfin hafa verið miklum mun meiri í dag en síðustu tvo daga, þegar gengið hefur dalað, upp á ríflega 1,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 10.11.2023 13:31