EM 2018 í handbolta

Svíar með sigur í síðasta leik fyrir EM
Svíar unnu Ungverja með tveimur mörkum í vináttuleik í handbolta í dag.

Misjafnt gengi andstæðinga Íslands um helgina
Andstæðingar Íslands á EM spiluðu sína síðustu æfingaleiki fyrir EM um helgina rétt eins og íslenska liðið.

Frakkar taka átján menn með til Króatíu
Heimsmeistarar Frakka taka með sér stóran hóp á EM í Króatíu og einhverjar verða að fylgjast með úr stúkunni.

Vita meira um meiðsli Arons í kvöld
Það er enn óljóst hversu alvarleg meiðsli Arons Pálmarssonar eru en hann gat ekki spilað vináttulandsleikinn gegn Þýskalandi í gær.

Þrír Evrópumeistarar skildir eftir heima
Christian Prokop, landsliðsþjálfari Þýskalands, tilkynnti EM-hópinn sinn eftir síðari landsleikinn gegn Íslandi í gær en val hans var erfitt.

Heimsmetið féll en annars fátt jákvætt
Guðjón Valur Sigurðsson skráði sig á spjöld handboltasögunnar þegar hann skoraði úr vítakasti fram hjá Andreas Wolff á 47. mínútu í vináttulandsleik Þýskalands og Íslands í Neu-Ulm í gær.

Geir segir erfitt að segja hvort Aron verði klár á EM: Stífleiki í baki og batinn er hægur
Geir Sveinsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, sagði óvíst hvort Aron Pálmarsson verði klár í slaginn þegar EM í handbolta hefst á föstudaginn þegar Vísir heyrði í honum.

Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 30-21 | Aldrei möguleiki gegn Þjóðverjum
Guðjón Valur Sigurðsson bætti heimsmetið í fjölda landsliðsmarka í dag en fátt annað stendur upp úr eftir níu marka tap Íslands gegn Þýskalandi í síðasta leik strákanna okkar fyrir EM í Króatíu.

Guðjón Valur sá markahæsti í sögunni
Guðjón Valur Sigurðsson hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar og er orðinn markahæsti landsleikjamaður sögunnar.

Strembið í Stuttgart
Íslenska handboltalandsliðið tapaði með sjö mörkum, 36-29, fyrir Þýskalandi í vináttulandsleik í gær. Varnarleikur og markvarsla var ekki til útflutnings.

Króatar héldu upp heiðri okkar riðils í kvöld
Króatar, mótherjar Íslands í A-riðli á Evrópumótinu í handbolta, voru í eldlínunni í kvöld alveg eins og íslensku strákarnir.

Arnar Freyr tók sjálfan sig í gegn og er á leið á EM með íslenska landsliðinu
Arnar Freyr Arnarsson, línumaðurinn sterki frá Kristianstad, tók sjálfan sig í gegn eftir vináttulandsleiki gegn Svíum hér heima í byrjun október.

Geir: Þetta er bara staðan á okkur í dag og við höfum verk að vinna
Geir Sveinsson var ekki ánægður með sitt lið eftir sjö marka tap á móti Evrópumeisturum Þýskalands í kvöld. Hann segir að liðið þurfi að nýta vel dagana fram að Evrópumótinu í Króatíu og þá sérstaklega til að laga varnarleikinn sinn.

Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 36-29 | Evrópumeistararnir reyndust alltof sterkir
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með sjö marka mun á móti Evrópumeisturum Þjóðverja, 36-29, í vináttulandsleik í Þýskalandi í kvöld. Ísland var 8-6 yfir en Þjóðverjar unnu lokakafla fyri hálfleiks 13-4 og sigur þeirra var ekki í hættu eftir það.

Ekki gott kvöld fyrir liðin í A-riðli okkar Íslendinga á EM í Króatíu
Ísland var ekki eina liðið í okkar riðli á Evrópumótinu í Króatíu sem tapaði í kvöld. Serbar töpuðu á sama tíma nágrannaslag á móti Makedóníumönnum.

Stojkovic tekur slaginn með Serbum
Reynsluboltinn Rastko Stojkovic hefur ákveðið að fresta hnéaðgerð svo hann geti spilað með Serbum á EM í Króatíu. Serbar eru í riðli með Íslandi á mótinu.

Geir: Arnór er einstakur
Það var ekki margt gagnrýnt í landsliðsvali Geirs Sveinssonar fyrir EM en einhverjir settu spurningamerki við valið á Arnóri Atlasyni sem hefur lítið spilað í Danmörku í vetur.

Veikindi og meiðsli hjá sænska landsliðinu
Það eru ekki bara veikindi hjá íslenska handboltalandsliðinu því fyrstu andstæðingar Íslands á EM, Svíar, eru líka að glíma við veikindi í sínum hópi.

Vegferðin á EM í Króatíu hófst á stórsigri í Höllinni
Ísland vann sautján marka sigur, 42-25, á Japan í Laugardalshöll í gær. Íslenska liðið var miklu sterkari aðilinn og spilaði vel í fyrri hálfleiknum. Leikurinn gefur þó litlar vísbendingar um hvar íslenska liðið er statt.

Rúnar fer ekki með landsliðinu til Þýskalands | Fór veikur heim fyrir leikinn í kvöld
Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna veikinda Rúnars Kárasonar sem gat ekki tekið þátt í leiknum á móti Japan í kvöld.

Geir: Ekkert ólíklegt að Óðinn fari með til Þýskalands
Ísland rúllaði yfir Japan, 42-25, í fyrsta vináttulandsleiknum af þremur fyrir EM í Króatíu. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn gegn frekar slöku japönsku liði.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Japan 42-25 | Strákarnir okkar tóku strákana hans Dags í kennslustund
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sautján marka stórsigur á Japan, 42-25, í síðasta heimaleik sínum fyrir Evrópumótið í Króatíu. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar áttu engin svör á móti frísku íslensku liði í Laugardalshöllinni í kvöld.

Ómar Ingi missir af landsleiknum í kvöld vegna veikinda
Ómar Ingi út og Óðinn Þór inn.

Elvar Örn dregur sig úr æfingahóp landsliðsins
Elvar Örn Jónsson hefur dregið sig úr æfingahóp íslenska landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig fyrir Evrópumótið í Króatíu vegna meiðsla.

HSÍ vildi ekki framlengja samning Geirs
Handknattleikssamband Íslands vill ekki framlengja samning sinn við Geir Sveinsson, landsliðsþjálfara A-landsliðs karla, fyrr en eftir að þátttöku Íslands á Evrópumótinu í Króatíu er lokið.

Það koma allir flottir til leiks
Strákarnir okkar spila sinn síðasta leik á Íslandi fyrir EM í kvöld er Dagur Sigurðsson mætir með japanska landsliðið í heimsókn. Geir Sveinsson landsliðsþjálfari segir að ástandið á leikmönnum íslenska liðsins sé mjög gott.

„Viljum ekki fá neitt gefins“
Janus Daði Smárason segir Íslendinga vera með lið sem getur unnið alla á Evrópumótinu í handbolta sem hefst í Króatíu í janúar.

Staðist allar mínar væntingar og gott betur
Eftir að hafa misst af síðasta stórmóti er Aron Pálmarsson klár í slaginn fyrir EM í Króatíu. Hann er ánægður með að óvissa sumarsins sé að baki og finnur sig vel hjá draumafélaginu. Aron segist vera að nálgast sitt besta form á nýjan leik.

Arnór Þór: Blússandi gangur í þessu
Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur átt afar góðu gengi að fagna með Bergischer í þýsku B-deildinni í vetur.

Guðjón Valur: þetta eru skemmtilegustu leikirnir
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í erfiðum riðli á EM í Króatíu sem hefst í næsta mánuði. Strákarnir okkar lentu í riðli með heimaliðinu, Serbíu og Svíþjóð.