
Fréttir
Úr 87 þúsund tonnum í 6.500
„Þetta var óumflýjanleg niðurstaða. Hún hafði verið í kortunum lengi,“ segir Kristján Freyr Helgason, formaður samninganefndar Íslands, á fundi í London þar sem kolmunnakvóti næsta árs var ákveðinn.

Hissa á skiptum skoðunum
Það kom sumum úr hópi fyrrverandi Evrópuþingmanna sem hittu Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að máli á mánudag, á óvart að mjög skiptar skoðanir eru innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

Mega sýna álagningarskrár áfram
Hæstiréttur hefur vísað frá máli Borgars Þórs Einarssonar gegn Skattstjóranum í Reykjavík.

Ísland er óviðbúið árásum tölvuþrjóta
Engar varnir gegn tölvuárásum sem gagn er að eru til staðar hér á landi, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á þörf fyrir þær. Tölvuárásir gætu lamað samskipti í gegnum Netið, og jafnvel haft áhrif á hluta símkerfisins.

Tillögur um bönn ekki úthugsaðar
Formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur segir margt of óljóst í tillögum meirihluta ráðsins um breytingar á samstarfi kirkju og skóla í Reykjavík.

Samkynhneigð ekki falin meir
Bandaríska hermálaráðuneytið gaf í gær út fyrirmæli um að nú megi taka homma og lesbíur í herinn, jafnvel þótt þau fari ekki dult með kynhneigð sína.

Harka færist í mótmælin
Grímuklædd ungmenni tókust á við lögreglu í nokkrum borgum Frakklands í gær, þar sem fjöldi fólks hefur mótmælt áformum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldur.

Ekki stætt á banni lengur
Reglur Evrópusambandsins gera það að verkum að Norðmenn geta ekki mikið lengur komið í veg fyrir áfengisauglýsingar á sjónvarpsstöðvum, sem senda út í öðrum löndum, jafnvel þótt útsendingin sé einkum ætluð áhorfendum í Noregi.

Tók meira en hundrað tonn
Lögreglan í mexíkósku borginni Tijuana við landamæri Bandaríkjanna lagði í gær hald á 105 tonn af kannabisefnum, sem er meira en dæmi eru til um að hald hafi verið lagt á í einu lagi í landinu árum saman.

Ekkert sparað í Afganistan
Breska stjórnin hefur ákveðið að grípa til sparnaðaraðgerða í hernaðarmálum, og er það liður í margboðuðum niðurskurði í ríkisfjármálum sem stjórnin telur sig nauðbeygða til að ráðast í.

Ráðning skrifstofustjóra á gráu svæði - Fréttaskýring
Hefði meirihlutinn í borginni átt að auglýsa starf skrifstofustjóra borgarstjóra laust til umsóknar þegar starfinu var breytt verulega?

Fjöldi framboða kom öllum í opna skjöldu - fréttaskýring
Hvernig verður staðið að kynningu á frambjóðendum og kosningakerfinu til stjórnlagaþings?

Fangar eru án gæslu inni á sjúkrahúsum
Afplánunarfangar sem þurfa að leggjast á sjúkrahús eru ekki vaktaðir af fangavörðum, svo fremi sem þeir eru ekki taldir hættulegir. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Vilja ekki styrki frá Evrópusambandinu
Talsverð andstaða er innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við að íslenska ríkið þiggi svonefnda IPA-styrki frá Evrópusambandinu.

Fjórðungur eyðir minna í heilbrigði
Fjórði hver félagsmaður í stéttarfélögunum Eflingu, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis (VSFK), svokölluðu Flóabandalagi, hefur dregið úr útgjöldum sínum til heilbrigðismála vegna versnandi fjárhags. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var meðal félagsmanna.

Telur tillögu meirihlutans bitna á þjónustu við börnin
Séra Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslusviðs Þjóðkirkjunnar, segir tillögur meirihluta mannréttindaráðs Reykjavíkur um breytingar á samstarfi skóla og kirkjunnar koma sér á óvart. Hann segist ekki hafa heyrt af óánægju meðal skólastjórnenda varðandi samstarfið.

Gullna hliðið lokað áfram
Engin áform eru uppi um að opna á ný forgangshlið í vopnaleit á Keflavíkurflugvelli sem lokað var sumarið 2007. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis.

Grandi byrjar síldveiðarnar í Breiðafirði
HB Grandi hefur ákveðið að senda Ingunni AK til veiða á íslenskri sumargotssíld og tók skipið nót í Reykjavíkurhöfn í gær. Mikil óvissa hefur verið um það hvort ástand síldarstofnsins væri með þeim hætti að kvóti yrði gefinn út á þessu hausti, en eins og kunnugt er greindist sýking í stofninum.

Þjófar ófundnir
Brotist var inn í þrjá sumarbústaði á Suðurlandi. Tveir bústaðanna eru í Heiðabyggðarlandi og eru í eigu stéttarfélags. Þetta er í þriðja sinn sem brotist er þar inn á innan við ári. Í tvö fyrri skiptin náðust þjófarnir með þýfið.

Munur aukist í 16,7 prósent
Kynbundinn launamunur meðal félagsmanna í Eflingu, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis (VSFK) mælist nú 16,7 prósent samkvæmt nýrri könnun. Munurinn hefur aukist lítillega frá því í fyrra, þegar hann mældist 15,7 prósent. Árið 2008 var munurinn 18,9 prósent.

Vilja farsælli úrlausn til langs tíma
Með fyrirkomulagi sem eykur gagnsæi og aga í ríkisfjármálum má koma í veg fyrir að sú erfiða staða sem ríkissjóður er nú í endurtaki sig. Þetta kemur fram í áliti Viðskiptaráðs Íslands.

Mótmæli leyfð gegn Japönum
Kínversk stjórnvöld gáfu góðfúslega leyfi sitt til fjöldamótmæla í nokkrum borgum, en þeim var beint gegn Japan. Sums staðar fóru mótmælin úr böndunum og til átaka kom við lögreglu.

Íbúar fluttir frá strandsvæðum
Á annað hundrað þúsund manns voru fluttir burt frá strandsvæðum á Filippseyjum áður en fellibylurinn Megi skall á í gær.

Enn skortir eldsneyti í Frakklandi
Starfsmenn olíuhreinsistöðva í Frakklandi virtu að vettugi beiðni stjórnvalda um að þeir sneru aftur til vinnu. Eldsneytisskortur verður því viðvarandi í landinu enn um hríð.

Engin málamiðlun í sjónmáli
Tilraunir til að mynda nýja ríkisstjórn í Belgíu fóru eina ferðina enn út um þúfur í gær, fjórum mánuðum eftir þingkosningar.

Aftengd vatnslögn til borgarlögmanns
Borgarlögmaður skoðar nú mál fjölskyldunnar sem Orkuveitan aftengdi kalda vatnið hjá í síðustu viku.

Þýskt fyrirtæki var með lægsta tilboðið
Fjögur fyrirtæki frá Þýskalandi, Argentínu og Króatíu buðu í uppsetningu raf- og vélbúnaðar Búðarhálsvirkjunar. Tilboðin voru opnuð í fyrradag á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík.

Sakborningar í Exeter-máli vísa ábyrgð hver á annan
Sakborningarnir þrír í svokölluðu Exeter-máli sérstaks saksóknara vísa hver á annan um ábyrgð á veigamiklum atriðum í málinu. Enginn þeirra telur þó að nokkur lög hafi verið brotin.

Þingið svipti flesta brotaþola bótunum
Lagabreyting frá síðasta ári gerir það að verkum að sárafá fórnarlömb afbrota fá nokkru sinni bætur sem þeim eru dæmdar fyrir tjónið. Breytingin á að spara ríkinu um 60 milljónir á ári.

Vill ekki einkavæða auðlindir
„Maður heyrir að fólki finnist að sérstaklega núna í kreppunni höfum við ekki efni á að hlífa náttúrunni,“ segir Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.