Ekkert sparað í Afganistan 20. október 2010 00:00 Cameron ræðir við hermenn David Cameron, forsætisráðherra Breta, kynnti niðurskurðinn í gær. nordicphotos/AFP
Breska stjórnin hefur ákveðið að grípa til sparnaðaraðgerða í hernaðarmálum, og er það liður í margboðuðum niðurskurði í ríkisfjármálum sem stjórnin telur sig nauðbeygða til að ráðast í. David Cameron forsætisráðherra tók þó fram að ekkert verði dregið úr þátttöku Breta í hernaðinum í Afganistan. Heildarframlög ríkisins til hermála verði auk þess áfram meira en tvö prósent af þjóðarframleiðslu, eins og Atlantshafsbandalagið gerir kröfu um. Breski herinn verði áfram sá fjórði stærsti í heimi. Alls verður hermönnum fækkað um sautján þúsund og starfsmönnum varnarmálaráðuneytisins um 25 þúsund. Þá verður öldnu flugmóðurskipi lagt og heill floti herþotna tekinn úr notkun og smíði fjögurra nýrra kafbáta verður frestað til 2016. Niðurskurðurinn nemur átta prósentum af heildarútgjöldum til hermála á fjárlögum næstu fjögurra ára. Cameron skýrði Barack Obama Bandaríkjaforseta frá þessu símleiðis áður en hann kynnti bresku þjóðinni áformin.- gb
Erlent Fréttir Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira