

Viktor Örn Ásgeirsson
Nýjustu greinar eftir höfund

Perry borinn til grafar
Leikaranum Matthew Perry var fylgt til grafar í Los Angeles í gær. Fjölskylda, vinir og vandamenn voru viðstödd athöfnina.

Skilorð fyrir að taka tvisvar um háls barnsmóður sinnar
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mána skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir gegn þáverandi sambýliskonu sinni. Atvikin sem málið varðar áttu sér stað árið 2019 og 2020.

Bein útsending: Vefmyndavélar í beinni frá Þorbirni
Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur töluverður hraði verið á landrisi við Þorbjörn. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu, þar sem sjá má útsýnið af Þorbirni, yfir Bláa lónið og Reykjanesskagann annars vegar og svo Grindavík hinsvegar.

Barn Barker og Kardashian komið í heiminn
Fyrsta barn trommarans Travis Barker og raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian er komið í heiminn. Kardashian tilkynnti um óléttuna í júlí þegar hún hélt á skilti á tónleikum Travis, sem er trommarinn í hljómsveitinni Blink-182, sem á stóð: „Travis, ég er ólétt.“

Mögulega aukinn hraði í tilfærslum
Síritandi GPS mælar í grennd við fjallið Þorbjörn virðast sýna töluvert stökk í tilfærslum í dag. Mælir við Eldvörp sýnir rúmlega eins sentimetra tilfærslu til vesturs á milli mælinga, yfir átta klukkustunda tímabil, sem er veruleg hröðun frá síðustu dögum. Þetta stökk er sjáanlegt á öllum mælum í kringum landrisið sem nú á sér stað, þó mismikið.

Furðar sig á ákvörðun Seðlabankans
Orri Hauksson forstjóri Símans furðar sig á ákvörðun fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands sem sektaði félagið um 76,5 milljónir króna í vikunni. Hann segir félagið hafa birt allar upplýsingar sem beri að birta samkvæmt lögum. Síminn ætlar að skjóta ákvörðuninni til dómstóla.

Tugir látnir eftir jarðskjálfta í Nepal
Að minnsta kosti 69 eru látnir eftir harðan jarðskjálfta í Nepal. Eyðileggingin er töluverð og fannst skjálftinn, sem var 5,6 að stærð, víða.

Hjólreiðamaður kærir Arnold Schwarzenegger
Hjólreiðamaður hefur kært líkamsræktarfrömuðinn, leikarann og stjórnmálamanninn Arnold Schwarzenegger. Arnold keyrði hjólreiðamanninn niður, sem segir Schwarzenegger hafa keyrt of hratt.

Snjórinn fallinn
J-dagurinn, svonefndi, er haldinn hátíðlegur í dag um allan heim til að fagna því að jólabjórinn sé mættur. Dagskrá hófst á Dönsku kránni klukkan 12:00 í dag og „snjórinn féll“ klukkan 20:59.

Dregið úr jarðskjálftavirkni
Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi síðan klukkan 18 í kvöld og skjálftarnir sem nú mælast eru minni. Virknin er þó enn töluverð og um 450 skjálftar hafa mælst á svæðinu í kringum Þorbjörn frá klukkan 15 í dag. Engin merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð.