Verðtryggð krafa á Íslandi orðin töluvert lægri en í Bandaríkjunum Ávöxtunarkrafan á bandarísku verðtryggðu ríkisskuldabréfi til þriggja ára er orðin um 60 punktum hærri en krafan á íslensku verðtryggðu ríkisbréfi og ef horft er til fimm ára er krafan á svipuðu reiki. Eigi að takast að ná niður verðbólgu og verðbólguvæntingum þarf „bálreiðan“ Seðlabanka og að lágmarki 100 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar, að mati skuldabréfamiðlara hjá Arion banka. 2.3.2023 11:10
Ráðherra sagður hunsa fyrirmæli sem miði að skilvirkari ríkisrekstri Fyrsti minni hluti fjárlaganefndar Alþingis hefur gert þá kröfu að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, virði sjö ára gömul fyrirmæli um að setja reglugerð sem ætlað er að „takmarka sóun og stuðla að hagkvæmum ríkisrekstri.“ 28.2.2023 15:01
Ice Fish Farm landar 24 milljarða króna lánalínu og sækir nýtt hlutafé Laxeldisfyrirtækið Ice Fish Farm á Austfjörðum hefur náð samkomulagi við fjóra banka um lánsfjármögnun að fjárhæð 156 milljónir evra, jafnvirði tæplega 24 milljarða króna, og samhliða því hefur verið ákveðið að hefja undirbúning að umfangsmikilli hlutafjáraukningu og skuldbreytingu hluthafalána. 28.2.2023 13:06
Fjárfestar búast við bröttum vaxtahækkunum á næstunni Óvænt verðbólgumæling leiddi til þess að ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa hækkaði umtalsvert í gær. Hækkun kröfunnar gefur til kynna dvínandi trú fjárfesta á að Seðlabankinn nái að koma böndum á verðbólguna en viðmælendur Innherja á fjármálamarkaði búast við því að Seðlabankinn bregðist við með verulegum vaxtahækkunum á næstunni. 28.2.2023 08:35
Seðlabankinn verði að „taka á honum stóra sínum“ eftir nýjar verðbólgutölur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands getur ekki annað en „tekið á honum stóra sínum“ þegar nefndin kemur aftur saman í mars. Þetta segir aðalhagfræðingur Arion banka en að hans mati hefur Seðlabankinn nú ástæðu til að hækka vexti um allt að 100 punkta til að bregðast við nýjustu verðbólgumælingu Hagstofunnar. 27.2.2023 13:38
Arðgreiðslur ríkisfélaga þremur milljörðum yfir áætlun Arðgreiðslur þriggja stærstu ríkisfyrirtækjanna; Landsbankans, Landsvirkjunar og Íslands, nema alls 33,7 milljörðum króna á þessu ári og eru þremur milljörðum hærri en upphæðin sem fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði ráð fyrir við gerð síðasta fjárlagafrumvarps. 24.2.2023 13:49
Borgin í þungum róðri á skuldabréfamarkaði Hækkun ávöxtunarkröfunnar á skuldabréfum Reykjavíkurborgar skilar sér í „verulega þungri vaxtabyrði“ á nýjum lánum. Krafan á óverðtryggða skuldabréfaflokknum RVKN 35 1, sem stendur í ríflega 8,8 prósentum, hefur hækkað um 1,5 prósentustig frá áramótum og nærri tvöfaldast frá byrjun árs 2022. 24.2.2023 08:37
Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. 22.2.2023 14:51
„Ef við værum með evruna væri verðbólga miklu hærri“ Ef Ísland hefði tekið upp evru væri verðbólga hér á landi „miklu hærri“ en hún er nú og þrátt fyrir lækkandi orkuverð í Evrópu eru verðbólguhorfurnar þar „ekki endilega" betri en á Íslandi, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. 21.2.2023 13:29
Lífeyrissjóðir enn í viðræðum um kaup á hlut Heimstaden á Íslandi Sænska leigufélagið Heimstaden á enn í viðræðum við íslenska lífeyrissjóði um mögulega kaup þeirra á hlut í starfseminni á Íslandi og er stefnt að því að klára viðskiptin á fyrsta ársfjórðungi, að sögn framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. 21.2.2023 06:00