Áform um 140 milljarða króna fjárfestingu á Bakka runnu út í sandinn Viljayfirlýsing fyrirtækisins Carbon Iceland og sveitarfélagsins Norðurþings um stórfellda uppbyggingu á lofthreinsiveri við Bakka á Húsavík, rann út um síðustu áramót og hefur ekki verið endurnýjuð. Skilyrði um að fyrirtækið næði samningi við Landsvirkjun um afhendingu raforku hafði ekki verið uppfyllt. 20.2.2023 16:23
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. 20.2.2023 11:58
Forstjóri SKEL ekki á þeirri skoðun að verðmiði Fossa sé of hár Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL fjárfestingafélags, sem er næststærsti hluthafi VÍS, segist ekki vera á þeirri skoðun að fjárfestingabankinn Fossar sé verðmetinn of hátt í fyrirhuguðum samruna við tryggingafélagið. Hann telur að „strategísk tækifæri“ geti falist í sameiningu félaganna. 17.2.2023 14:03
Stjórn Marel vill skerpa á langtímahvötum stjórnenda Stjórn Marel mun leggja fram tillögu á aðalfundi félagsins sem miðar að því að breyta langtímahvatakerfi félagsins úr kaupréttum í svokölluð frammistöðutengd hlutabréf sem eru háð því að fyrir fram skilgreindum markmiðum sé náð. Með breytingunni vill stjórnin skapa betra jafnvægi milli skammtíma- og langtímahvata, auk þess að færast nær alþjóðlegum viðmum. 17.2.2023 07:59
Síminn vill gera fjártæknilausn að „nýjum kjarnastöpli“ í rekstrinum Síminn vill gera fjártæknilausnina Síminn Pay, sem hefur skilað fjarskiptafélaginu miklum útlánavexti á síðustu mánuðum, að „nýjum kjarnastöpli“ í rekstrinum og einnig sér félagið tækifæri í „dæmigerðum stafrænum áskriftarvörum“ sem hægt er að selja á mánaðarlegum grunni. Þetta kom fram í máli Orra Haukssonar, forstjóra Símans, á uppgjörsfundi sem félagið stóð fyrir í morgun. 15.2.2023 14:15
VÍS og Fossar hefja samrunaviðræður Vátryggingafélag Íslands og hluthafar Fossa fjárfestingarbanka hafa ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum fjárfestingarbanka á grundvelli viljayfirlýsingar um sameiningu félaganna. 15.2.2023 07:39
Reginn greiddi út kaupauka fyrir árangur á sviði sjálfbærnimála Fasteignafélagið Reginn greiddi út kaupauka til lykilstjórnenda félagsins fyrir árangur á sviði sjálfbærnimála á árinu 2022. Þetta er í fyrsta sinn sem fasteignafélagið greiðir út sjálfbærnitengda kaupauka en aðeins eitt annað fyrirtæki í Kauphöllinni, Marel, hefur innleitt álíka hvatakerfi fyrir stjórnendur. 15.2.2023 07:17
Kostnaður við 90 daga neyðarbirgðir yrði olíufélögum of þungbær Skeljungur, dótturfélag SKEL fjárfestingafélags, telur að rekstrargrundvöllur félagsins, sem og annarra olíufélaga, geti ekki staðið undir fjármagnskostnaði sem félli til vegna þeirra kvaða um birgðahald eldsneytis sem áformað er að leiða í lög. Nauðsynlegt sé að niðurgreiða aukið birgðahald enda sé það hlutverk ríkisins, ekki einkafyrirtækja, að tryggja þjóðaröryggi. 14.2.2023 09:09
Ljóst að bankinn hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“ Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir ljóst að bankinn, sem ráðgjafi í sölunni á 22,5 prósenta hlut ríkisins í mars 2022, hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“. 10.2.2023 13:38
Harður tónn Seðlabankans hífir upp kröfu ríkisbréfa Ávöxtunarkröfur á óverðtryggðum ríkisskuldabréfum á styttri endanum hækkuðu um allt að 30 punkta í morgun eftir að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka vexti um 0,5 prósentustig. 8.2.2023 13:49