Lífeyrissjóðir með fjórðung af nýjum íbúðalánum árið 2022 Hrein ný útlán lífeyrissjóða til heimila námu 48 milljörðum króna árið 2022 og voru þau um fjórðungur af heildarupphæð nýrra íbúða á árinu. Nýbirtar tölur Seðlabanka Íslands sýna endurkomu lífeyrissjóða á lánamarkaði eftir tveggja ára tímabil þar sem uppgreiðslur voru meiri en ný útlán. 7.2.2023 15:31
Seðlabankinn í klemmu milli þess að sýna festu eða yfirvegun Meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 50 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Skiptar skoðanir eru á því hvort bankinn eigi að sýna yfirvegun eða festu í því að hemja þensluna í hagkerfinu. 6.2.2023 09:20
Ávinningur af skatti á streymisveitur sagður „óljós“ Tekjur ríkisins af því að leggja skatt á streymisveitur með sama hætti og mörg önnur Evrópuríki hafa gert gætu numið 200 milljónum króna á ári samkvæmt mati Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Ráðuneytið telur hins vegar að ávinningurinn af slíkri skattheimtu sé „óljós“ og hugsanlega geti hún haft neikvæð áhrif á þann iðnað sem er nú þegar til staðar. 3.2.2023 06:36
Hvetja stjórnvöld til að endurskoða „gamaldags“ regluverk um lífeyrissjóði Stjórnvöld ættu ekki að fresta því að undirbúa lagasetningu um hertara eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða að sögn þriggja erlendra sérfræðinga sem gerðu úttekt á starfsemi Seðlabanka Íslands. 1.2.2023 14:17
Lífeyrissjóðir skiluðu neikvæðri raunávöxtun upp á 12 prósent í fyrra Samkvæmt áætlun Landssamtaka lífeyrissjóða var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða neikvæð um tæplega 12 prósent árið 2022 og er þar miðað við vegið meðaltal ávöxtunar alls eignasafns sjóðanna að teknu tilliti til verðbólgu. 1.2.2023 10:19
Væntingar um 50 punkta vaxtahækkun farnar að myndast Sérfræðingar á skuldabréfamarkaði eru byrjaðir að gera ráð fyrir 50 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í febrúar. Verðbólgan er orðin víðtæk, krónan hefur átt erfitt uppdráttar og einkaneysla verður líklega meiri en spár Seðlabankans hafa gert ráð fyrir. 31.1.2023 13:30
Verðbólgukippur í boði hins opinbera kúvendir ekki horfunum Megnið af hækkun vísitölu neysluverðs í janúar má rekja til gjaldskrárhækkana hins opinbera en verðbólgumælingin setur þrýsting á peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hækka vexti enn frekar. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í bréfi sem Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, sendi á viðskiptavini í dag. 30.1.2023 15:58
Ótímabært að fella dóm um jafnlaunavottunina Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra, segir of snemmt að fella dóm um það hvort lögfesting jafnlaunavottunarinnar hafi skilað tilætluðum árangri en hratt minnkandi launamunur kynjanna á síðustu árum gefi þó sterklega til kynna að svo sé. 30.1.2023 10:18
Vaxtaálag á bréf bankanna heldur áfram að „falla eins og steinn“ Vaxtaálag á útgáfur íslensku bankanna í erlendri mynt hefur haldið áfram að lækka á eftirmarkaði og standa bankarnir því mun betur að vígi en þeir gerðu um áramótin þegar kemur að erlendri fjármögnun. 26.1.2023 13:25
Ný fyrirtækjalán rufu 300 milljarða króna múrinn á árinu 2022 Hrein ný fyrirtækjalán í bankakerfinu námu 302 milljörðum króna á árinu 2022 og er það langsamlega mesta útlánaaukningin sem hefur mælst á einu ári frá því að Seðlabanki Íslands byrjaði að halda utan um gögnin árið 2013. 26.1.2023 09:05