ÍL-sjóður „stór óvissuþáttur“ í efnahag ríkissjóðs Þróun efnahags ÍL-sjóðs, sem áður hét Íbúðalánasjóður, er „stór óvissuþáttur“ í langtímaþróun skulda ríkissjóðs í ljósi þess að efnahagur sjóðsins er bæði umfangsmikill og næmur fyrir breytingum á markaðsaðstæðum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2023 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag. 12.9.2022 15:11
Aðalatriðið að „flýta sér hægt“ þegar kemur að eignarhaldi Ljósleiðarans Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og formaður borgarráðs, segir að hún sé „í prinsippinu“ fylgjandi því að skoða breytingar á eignarhaldi opinberra fyrirtækja í samkeppnisrekstri. Slíkar breytingar taki þó tíma og hugmyndir um breytt eignarhald á Ljósleiðaranum hafi ekki enn komið formlega á borð Reykjavíkurborgar. 9.9.2022 15:41
Fyrirtækjalán bólgnuðu út vegna misræmis í gögnum Seðlabankans Seðlabanki Íslands hefur tekið nýjustu tölur um fjármálareikninga fjármálafyrirtækja úr birtingu vegna misræmis sem leiddi til þess að útlán fjármálakerfisins til fyrirtækja voru verulega ofmetin. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Seðlabankans. 9.9.2022 12:01
Fjölgun í hluthafahópi Ljósleiðarans kemur til greina Ljósleiðarinn og Orkuveita Reykjavíkur hafa til skoðunar að hleypa utanaðkomandi fjárfestum inn í hluthafahóp Ljósleiðarans ef ráðist verður í hlutafjáraukninguna sem er nú í undirbúningi. Þetta staðfestir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjarskiptafélagsins, við Innherja. 9.9.2022 06:31
Sidekick landar stórum samningi í Sviss og vinnur að frekari fjármögnun Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health mun hefja samstarf við svissneska fyrirtækið Ypsomed en í því felst að stafrænar heilbrigðislausnir íslenska fyrirtækisins verða samþættar svokölluðum snjall-llyfjapennum (e. smart auto-injectors). Samkvæmt heimildum Innherja er Sidekick jafnframt nálægt því að klára fjármögnunarlotu sem mun gera innlendum fjárfestum kleift að koma inn í hluthafahópinn. 8.9.2022 11:30
Fyrirtækjalán tóku 240 milljarða króna stökk á einum fjórðungi Umfang fyrirtækjalána í fjármálakerfinu jókst um 240 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi en ekki hefur sést viðlíka aukning milli fjórðunga frá árinu 2008. Þetta má lesa úr nýjum tölum um fjármálakerfið sem Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega. 7.9.2022 16:16
ESA blessar 96 milljarða króna matshækkanir Félagsbústaða ESA, eftirlitsstofnun EFTA, telur sig ekki hafa forsendur til að aðhafast vegna matshækkana á fasteignum Félagsbústaða, dótturfélags Reykjavíkurborgar, eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að þau brjóti á engan hátt í bága við lög evrópska efnahagssvæðisins. Þetta kemur fram í bréfi sem eftirlitsstofnunin sendi innviðaráðuneytinu í sumar og ráðuneytið afhenti Innherja. 7.9.2022 12:00
Hlutdeildarfélag Marels komið í greiðsluþrot Stranda Prolog, norskur framleiðandi hátæknilausna fyrir laxaiðnað sem Marel á 40 prósenta hlut í, hefur lýst sig gjaldþrota, samkvæmt frétt á heimasíðu íslenska tæknifyrirtækisins. 6.9.2022 16:06
Borgin sýpur seyðið af lausatökum Reykjavíkurborg var í fararbroddi sveitarfélaga þegar kom að því að skapa störf í heimsfaraldrinum. Á milli áranna 2019 og 2021 fjölgaði stöðugildum hjá borginni um tæplega eitt þúsund að meðaltali – hlutfallsleg aukning var um 13,5 prósent – sem var mun meiri fjölgun en greina mátti í rekstri annarra sveitarfélaga. 6.9.2022 07:01
Fjárfestakynning gaf eftirlitinu ástæðu til íhlutunar Samkeppniseftirlitið telur að matarpakkafélagið Eldum rétt sé mögulegur keppinautur Haga á dagvörumarkaði og sömuleiðis að Hagar séu mögulegur keppinautur á markaðinum fyrir samsetta matarpakka. Þessi ályktun, sem helgast meðal annars af atriðum í fjárfestakynningu frá því í október 2021, kemur fram í frummati Samkeppniseftirlitsins á samruna fyrirtækjanna tveggja. 1.9.2022 15:47