Farage býður til samstarfs Ef ríkisstjórn Íhaldsflokksins í Bretlandi, undir forsæti Boris Johnson, kemur Bretlandi út úr Evrópusambandinu án samnings í október næstkomandi ætlar hinn nýi Brexitflokkur Nigels Farage ekki að bjóða fram í næstu þingkosningum. Þetta sagði Farage við stuðningsmenn í gær. 28.8.2019 07:00
Gætu vikið frá stefnu sinni um beitingu kjarnorkuvopna Varnarmálaráðherra Indlands gefur til kynna að Indverjar gætu vikið frá stefnu sinni um að beita kjarnorkuvopnum ekki fyrr en á þá er skotið fyrst. Ekki formleg stefnubreyting. Deilan við Pakistana hefur harðnað til muna. 23.8.2019 06:15
Mikil sorg ríkir í Afganistan Gríðarleg sorg ríkir í Kabúl eftir að 63 voru myrt í sprengjuárás á brúðkaup í afgönsku höfuðborginni. Forsetinn segir árásina skepnuskap og þótt ISIS beri ábyrgð geti talibanar ekki sagst alsaklausir. 19.8.2019 08:30
Aftur skorið á samskiptin Stjórnvöld á Indlandi drógu ákvörðun sína um að heimila síma- og internetnotkun í ýmsum hverfum borgarinnar Srinagar í indverska hluta Kasmír til baka í gær. Þá var útgöngubann sett aftur á sömuleiðis. Þetta hafði Reuters eftir heimildarmönnum á svæðinu en tugir höfðu særst fyrr um daginn í átökum lögreglu og íbúa. 19.8.2019 08:00
Kínverjar ætla ekki að sitja hjá og horfa á mótmælin í Hong Kong Ef mótmælin í Hong Kong halda áfram og stjórnvöld í kínverska sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong ná ekki stjórn á mótmælendum mun ríkisstjórn Kína í Peking ekki sitja hjá og einfaldlega fylgjast með. 19.8.2019 07:30
Sáu flóttamenn en sigldu á brott Malta Mohammed Adam Oga, sá eini sem lifði af tilraun fimmtán flóttamanna til að sigla yfir Miðjarðarhaf fyrr í mánuðinum, sagði við Reuters í gær að fleiri en eitt skip hefði siglt fram hjá flóttamönnunum, hundsað allar beiðnir um aðstoð og siglt á brott. 19.8.2019 07:00
Leiðtogar koma til landsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur í dag á móti Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Antti Rinne, forsætisráðherra Finnlands. 19.8.2019 06:30
Sameining eða þjóðarmorð Forsætisráðherrar Indlands og Pakistans báru hvor út sinn boðskapinn um hina eldfimu stöðu sem er uppi í indverska hluta Kasmírhéraðs. Svæðið hefur verið svipt sjálfstjórn og íbúar búa við útgöngubann, net- og símaleysi. 16.8.2019 06:00
Heræfing nærri Hong Kong Hundruð kínverskra herlögreglumanna settu á svið heræfingu á íþróttaleikvangi í tækniborginni Shenzhen í gær, skammt frá sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong. 16.8.2019 06:00
Fjárfestar svartsýnir eftir forkosningar í Argentínu Ekkert nema rauðar tölur á mörkuðum í Argentínu eftir að Fernández og Kirchner höfðu betur gegn sitjandi forseta í forkosningum. 14.8.2019 08:30