Afhjúpaði gróðavænlegasta lukkuhjól borgarinnar Júlíus Þór Björnsson Waage, Akureyringur í verkfræðinámi í Reykjavík, hefur unnið mikið tölfræðilegt afrek í frítíma sínum að undanförnu, sem er að skrásetja tölfræðilega möguleika á vinningum í lukkuhjólunum á öldurhúsum Reykjavíkur. 28.10.2022 08:40
„Það væri náttúrulega bara stórslys“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það yrði menningarlegt stórslys ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur veröldina alla ef íslensk tunga dæi út og enska væri tekin upp hér á landi. Katrín ræddi málefni íslenskunnar í Íslandi í dag, sem sjá má hér að ofan. Í innslaginu er að sönnu farið um víðan völl – líkt og fyrirsögnin ber með sér. 27.10.2022 08:56
„Þú mátt ekki segja íbúarnir og vera að vísa til allra“ Ketill Sigurjónsson er framkvæmdastjóri Zephyr Iceland, sem hefur stórtæk áform um uppbyggingu vindmyllugarða víða um land, þar á meðal í Hvalfirði. Þar hefur áformunum verið harðlega mótmælt af sumum íbúum, þar á meðal Skúla Mogensen athafnamanni. Fjallað var um áformin í Íslandi í dag og lúxusböð Skúla heimsótt, sem vindmyllurnar eru sagðar munu skyggja á. 24.10.2022 08:45
Ermarsundskonur hittust í teboði: „Þetta snýst miklu frekar um hausinn en líkamann“ Sérstakt teboð var haldið var í Laugardal í Reykjavík í dag, þar sem boðsgestirnir voru allar íslenskar konur sem synt hafa yfir Ermarsundið en þær eru tuttugu og þrjár talsins. Konurnar báru saman bækur sínar og fögnuðu því að hafa unnið þetta mikla afrek. 23.10.2022 21:59
Vill að rekstur allra leiða verði boðinn út til einkaaðila Framkvæmdastjóri Strætó bs. talar fyrir því að rekstur allra strætisvagna fyrirtækisins verði boðinn út til einkaaðila, enda fáist þannig hagstæðari verð. Aukin útvistun núna muni þó ekki leysa bráðavandann sem Strætó er í - framkvæmdastjórinn hefur aldrei séð það svartara í fjármálum félagsins frá því að hann tók við. 23.10.2022 20:59
Mjög dapurlegt að fjölskylda sé í þessari stöðu Það er grafalvarlegt að mæður þurfi að flytja sig á milli landshluta til að fæða börn, þegar þjónustan ætti að vera til staðar í nærumhverfinu, að sögn formanns Læknafélags Íslands. Snjóhengja vofi yfir kerfinu þar sem kynslóð héraðslækna sem sættir sig við óboðlegar vinnuaðstæður sé á leið á eftirlaun. 23.10.2022 16:47
Sögulegar skáldsögur áberandi í jólabókaflóði Nú þegar rétt rúmir tveir mánuðir eru til jóla eru hillur verslana að fyllast af nýprentuðum bókum í öllum stærðum og gerðum. Bókajólin í ár eru sögð jól stærri höfunda og eins og fyrri ár má gera ráð fyrir eilítilli hækkun bókaverðs. 22.10.2022 22:34
Flytja til Akureyrar frá Egilsstöðum yfir jólin enda ekki í boði að fæða fyrir austan Barnshafandi kona á Egilsstöðum þarf að flytja alla fjölskyldu sína til Akureyrar yfir jólin þar sem ljóst þykir að hún muni ekki geta fætt barn í Neskaupstað. Þar finnst enginn skurðlæknir til að vera á vakt. Þetta er ástand sem þarf að breytast, segir konan, sem sjálf er hjúkrunarfræðingur. Aðeins er hægt að ganga út frá fæðingarþjónustu vísri árið um kring á þremur stöðum á landinu. 22.10.2022 18:31
„Þetta er orðið virkilega alvarlegt“ Ástandið á Kirkjufelli í Grundarfirði er orðið virkilega alvarlegt að sögn bæjarstjóra á staðnum. Í vikunni varð þar þriðja dauðsfallið á aðeins fjórum árum. Bæjarstjóri segir nauðsynlegt að tækla vandann enda sé staðan óviðunandi. Það sé þó ekki endilega raunhæft að loka fjallinu alveg. 22.10.2022 14:43
Breytt stundatafla að hafa jákvæð áhrif Námsárangur barna í fyrsta bekk í Vestmannaeyjum er betri eftir að verkefninu Kveikjum neistann var hleypt af stokkunum fyrir ári síðan, að sögn skólastjóra í Eyjum. Kennsluaðferðum var breytt með margvíslegum hætti. Niðurstöður verkefnisins voru kynntar á fundi í morgun. 22.10.2022 12:10
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent