Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Inga skipar nýjan skóla­meistara Borgar­holts­skóla

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur í embætti skólameistara Borgarholtsskóla til fimm ára frá 1. júlí næstkomandi. Umsækjendur um starfið voru tveir.

Bein út­sending: Ný­sköpunar­verð­laun Norður­landanna

Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. 

Skatturinn birtir á­lagningu í dag

Niður­stöður álagningar ein­stak­linga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustu­vef Skattsins í dag, 21. maí. Fyrir þau heppnu verða inn­eignir greiddar út 1. júní. Fyrir þau sem nýta upp­haf sumars til að gefa til baka verður upp­lýsingum um skuldir komið til launa­greiðanda.

Skipuð rektor MH fyrst kvenna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor.

Þúsund ís­lensk ung­menni leggja undir sig Krít

Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn.

Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst fé­laga

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda. Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð. Umræða um frjósemisvanda hefur aukist mjög á síðustu árum og er talið að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.

Sex kafarar látnir á Maldíveyjum

Yfirvöld á Maldíveyjum hafa fundið lík fjögurra ítalskra kafara sem saknað hafði verið síðan í síðustu viku. Hópurinn var frá háskólanum í Genóa og var þar til að sinna rannsóknum. Maldíveyjar eru sjálfstætt ríki staðsett í Indlandshafi og þykja búa yfir gífurlegri náttúrufegurð. Þar á meðal eru fjölskrúðug kóralrif sem hópurinn hugðist rannsaka.