Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi

Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. 

Frostbitnir Frónbúar kætast í dag

Spáð er blíðskaparveðri sunnan- og vestantil á landinu í dag. Samkvæmt spá Veðurstofunnar mun hiti ná nítján gráðum í Reykjavík síðdegis. 

Hafnar kreddum um verð­bólguna

Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum.

Hefur þegar fengið starfstilboð

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum.

„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður.

Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi.

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Sjá meira