
Spennuþrungið andrúmsloft í Karphúsinu og viðræður á viðkvæmu stigi
Ljóst er að fundað verður fram á kvöld í Karphúsinu en fjölmiðlabann er þar í gildi að beiðni ríkissáttarsemjara.
Fréttamaður
Ljóst er að fundað verður fram á kvöld í Karphúsinu en fjölmiðlabann er þar í gildi að beiðni ríkissáttarsemjara.
Kjaraviðræður aðila vinnumarkaðarins halda áfram í dag en boðaður var fundur hjá Ríkissáttasemjara núna klukkan 10:00.
Fundað var fram á kvöld í Karphúsinu í dag þar sem VR, samflot iðn- og tæknifólks og samtök iðnaðarins settust niður saman, enda mikið undir. Ríkissáttasemjari segir vinnuna reyna á þrautseigju fólks.
Formaður VR segir enn svartsýnni á árangur í kjaraviðræðum í dag en hann var í gær. Viðræður virðast hreinlega ekkert þokast. Samflot VR og iðnaðarmanna fundar nú áfram með samtökum atvinnulífsins, fundur stóð fram eftir kvöldi í gær, en helgin mun ráða úrslitum um það hvort skammtímasamningur sé mögulegur.
Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um útlendinga var sett aftur á dagskrá þingsins í dag en tímasetning umræðunnar var harðlega gagnrýnd af stjórnarandstöðunni sem segir mikilvæg mál eins og eingreiðslu til öryrkja tefjast í kjölfarið.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir þann flýti sem settur var í að loka kjarasamningi milli Samtaka Atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins. Menn hefðu átt að fara sér hægar og ekki glutra niður góðu tækifæri.
Von um skammtímasamning er úti ef ekki tekst að semja á næstu dögum að mati formanns VR. Mikil ólga ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að Starfsgreinasambandið samdi við Samtök atvinnulífsins um helgina.
Ragnar Þór Ingófsson, formaður VR, segir samningsstöðu VR og annarra verkalýðsfélaga verri eftir að Starfsgreinasambandið og Samtök Atvinnulífsins lentu nýjum kjarasamningi um helgina. Ragnar Þór segir VR aftur komið að samningaborðinu.
Aðilar vinnumarkaðarins munu funda inn í nóttina en yfir standa kjaraviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins annars vegar og hins vegar milli SA og samflots iðn- og tæknifólks. Góður gangur hefur verið í viðræðum dagsins en staðan er þó viðkvæm.
Aðilar vinnumarkaðarins halda áfram að funda í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag en gert var hlé á fundarhöldum í gær svo viðsemjendur gætu farið yfir málin með sínu baklandi. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segir mikilvægt að ná saman eins fljótt og mögulegt er.