Fá grænt ljós á stærsta samruna leikjaiðnaðarins Microsoft fékk í gær grænt ljós á að ganga frá 69 milljarða dala kaupum fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Samruninn verður sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins og með kaupunum mun Microsoft koma höndum yfir vinsæla tölvuleiki eins og Call of Duty seríuna, Diablo, Overwatch, World of Warcraft og Candy Crush. 12.7.2023 10:40
Synapse: Hugarorkan ræður ríkjum í Sýndarveruleika Synapse, nýjasti sýndarveruleikaleikur PSVR2, sýnir mátt tækninnar gífurlega vel. Hann er hraður og skemmtilegur, þó hann geti verið einsleitur á köflum. Í Synapse fær maður að fleygja hlutum og óvinum til og frá með hugarorkunni, skjóta óvini með byssum eða sprengja þá í loft upp. 12.7.2023 08:45
Wagner-liðar tóku stefnuna á kjarnorkuvopnageymslur Þegar málaliðar Wagner stefndu hraðbyr að Moskvu í uppreisn þeirra í síðasta mánuði, breytti hópur þeirra um stefnu og keyrði í átt að rússneskri herstöð þar sem kjarnorkuvopn eru geymd. Málaliðarnir komust í allavega hundrað kílómetra fjarlægð frá herstöðinni, sem kallast Voronezh-45. 12.7.2023 08:37
Fundu lík barns í fjöru Líkamsleifar ungs barns fundust í fjöru við Miðjarðarhafið í morgun. Talið er að barnið hafi verið tveggja til þriggja ára en líkamsleifarnar eru taldar hafa verið í nokkurn tíma í sjónum. 11.7.2023 15:01
Síðasti dagur strandveiða Síðasti dagur strandveiða er í dag og verða þær stöðvaðar frá og með morgundeginum. Þetta er stysta vertíðin í sögu strandveiða á Íslandi. 11.7.2023 14:39
Þarf ekki að borga tugi milljóna í fundarlaun Söng- og leikkonan Lady Gaga þarf ekki að greiða konu hálfa milljón dala í fundarlaun fyrir að skila hundum hennar. Konan, sem hefur verið dæmd vegna hundaránsins, fór í mál gegn Gaga og hélt því fram að hún ætti rétt á peningunum, þar sem söngkonan hefði heitið því að spyrja engra spurninga ef hún fengi hundana aftur. 11.7.2023 11:16
Ungverjar einnig hlynntir aðild Svía að NATO Yfirvöld í Ungverjalandi ætla að styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið en utanríkisráðherra landsins sagði í morgun að samþykkt innngöngu Svía væri nú eingöngu tæknilegs eðlis. Tyrkir og Ungverjar voru þeir einu sem settu sig á móti inngöngu Svía en Peter Szijjarto, áðurnefndur utanríkisráðherra, sagði í síðustu viku að Ungverjar myndu fylgja Tyrkjum, skiptu þeir síðarnefndu um skoðun. 11.7.2023 10:27
Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast. 11.7.2023 09:14
Verulega minni kraftur en í gær Verulega hefur dregið úr krafti eldgossins við Litla-Hrút í nótt og hraunflæði hefur minnkað. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, en hann var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 11.7.2023 08:16
Segir þörf á mannsæmandi samgöngum til Vestfjarða Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir þörf á mannsæmandi samgöngum á Vestfjörðum. Mikill vöxtur væri á svæðinu og gera þyrfti mun betur þegar kæmi að samgöngum. 9.7.2023 14:30