Stækka geimstöðina og bjóða öðrum í heimsókn Kínverjar ætla að gera geimstöð sína tvöfalt stærri og fjölga hlutum hennar úr þremur í sex. Þá stendur einnig til að bjóða geimförum annarra þjóða að ferðast til geimstöðvarinnar og halda þar til. 5.10.2023 15:50
Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni. 5.10.2023 13:59
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Forsvarsmenn hinnar árlegu ljósmyndakeppni Comedy Wildlife Photography Awards birtu nýverið þær myndir sem keppa til úrslita í ár. Myndirnar sýna villt dýr við skondnar og oft undarlegar aðstæður. 5.10.2023 13:01
Costco selur gull í massavís Verslunarrisinn Costco hefur selt smáar gullstangir í massavís í Bandaríkjunum að undanförnu. Fyrirtækið hefur verið að selja einnar únsu smágullstangir og eru þær vinsælli en þvottaefni. 5.10.2023 11:58
Mannskæð skyndiflóð á Indlandi Minnst fjórtán eru látnir og rúmlega hundrað er saknað vegna skyndiflóða á norðanverður Indlandi. Mikil rigning hefur verið á svæðinu og hafa björgunarsveitir staðið í ströngu frá því í gærmorgun. Rúmlega tvö þúsund manns hefur verið bjargað undan flóðunum. 5.10.2023 09:04
Föruneyti Pingsins: Barist til bjargar Baldur's Gate Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3. 4.10.2023 19:31
Nota lífsýni til að bera kennsl á lík Enn er ekki búið að bera kennsl á alla þá sem dóu þegar rúta fór fram af brú nærri Feneyjum á Ítalíu í gær. Minnst 21 lést en 39 ferðamenn voru um borð í rútunni. Líklega þarf að nota lífsýni til að bera kennsl á einhver líkanna, þar sem engin skilríki fundust á þeim. 4.10.2023 15:56
Boeing í basli með Starliner Forsvarsmenn Boeing eiga í basli með geimfarið Starliner og hefur fyrirtækið tapað minnst 1,4 milljörðum dala á þróun þess. Þessi þróun hefur gengið brösuglega í gegnum árin og hefur fyrsta geimskoti þess ítrekað verið frestað. 4.10.2023 15:32
Sundraðir Repúblikanar gefa sér viku Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins. 4.10.2023 13:32
Vísa 1,7 milljónum Afgana úr landi Yfirvöld í Pakistan tilkynntu í gær að öllum ólöglegum flóttamönnum verði vísað úr landi strax í næsta mánuði. Þó Sarfraz Bugti, starfandi innanríkisráðherra Pakistans, segi að þessar aðgerðir beinist ekki gegn Afgönum er áætlað að þær muni leiða til þess að um 1,7 milljónir Afgana verði reknir úr landi. 4.10.2023 10:49