Segja heita síma Apple ekki skrifast á nýja hönnun Forsvarsmenn Apple segja það ekki nýrri hönnun iPhone 15 að kenna að símarnir eigi það til að hitna, heldur sé að mestu um hugbúnaðargalla að ræða. Til stendur að laga þennan galla í nýrri uppfærslu fyrir iOS 17, stýrikerfi Apple. 1.10.2023 12:15
Féll af svölum á fjórðu hæð Maðurinn sem féll fram af svölum í Vesturbænum í gær féll af fjórðu hæð. Talið er að um slys hafi verið að ræða en enginn vitni urðu að fallinu, heldur fannst maðurinn liggjandi í grasinu við húsið eftir að hann féll. 1.10.2023 11:17
Umdeildur fyrrverandi forsætisráðherra í góðri stöðu Flokkur umdeilds fyrrverandi forsætisráðherra Slóvakíu bar sigur úr býtum í þingkosningum gærdagsins og fékk nærri því fjórðung atkvæða. Smer-flokkurinn er leiddur af Robert Fico, sem þykir vinveittur yfirvöldum í Rússlandi og hefur heitið því að hætta öllum stuðningi við Úkraínu. 1.10.2023 10:44
Sprenging og skotbardagi í Ankara Maður sprengdi sig í loft við húsnæði innanríkisráðuneytis Tyrklands í Ankara í morgun og annar var felldur í skotbardaga við lögregluþjóna. Tveir lögregluþjónar særðust í átökunum en þingsetning er í Tyrklandi í dag. 1.10.2023 09:15
Hvasst á sunnanverðu landinu Búast má við hvassviðri á sunnanverðu landinu fram eftir degi. Skil nálgast landið úr suðaustri og snýst því í norðaustanátt í dag með kalda og stiningskalda víða og dálítilli vætu. Þó mun rofa til um landið suðvestanvert. 1.10.2023 08:36
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. 1.10.2023 08:05
Lokun stofnana vestanhafs virðist óhjákvæmileg Ekkert virðist geta komið í veg fyrir lokun opinberra stofnana í Bandaríkjunum. Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildarinnar, þvertekur fyrir að frumvarp frá öldungadeildinni um fjármögnun ríkisrekstursins verði tekið fyrir í fulltrúadeildinni en harðlínumenn í Repúblikanaflokknum eru sagðir ætla sér að velta McCarthy úr sessi. 29.9.2023 15:59
Dianne Feinstein, elsti öldungadeilarþingmaðurinn, er látin Dianne Feinstein, elsti öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna, er látin. Feinstein ruddi marga múra niður fyrir konur á sínum langa ferli í stjórnmálum en hún var níutíu ára gömul og hafði glímt við veikindi. Hún er sögð hafa dáið á heimili sínu í gærkvöldi. 29.9.2023 14:48
Skólabörn frá Vopnafirði urðu strandaglópar í Amsterdam Skólabörn frá Vopnafjarðarskóla urðu strandaglópar í Amsterdam í dag eftir að yfirbókað var í flugvél frá Play sem flogið var heim til Íslands. Þau verða flutt til Brussel og flogið til Íslands á morgun. 29.9.2023 14:05
Tvær mannskæðar sprengingar í Pakistan Að minnsta kosti 52 eru látnir og nærri því sjötíu særðir eftir sprengjuárás í Pakistan í morgun. Sprengja sprakk þar sem fjöldi fólks hafði komið saman til að fagna afmæli spámannsins Múhameðs en árásin er ein sú mannskæðasta á landinu á undanförnum árum. 29.9.2023 13:10