Verulega minni kraftur en í gær Verulega hefur dregið úr krafti eldgossins við Litla-Hrút í nótt og hraunflæði hefur minnkað. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, en hann var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 11.7.2023 08:16
Segir þörf á mannsæmandi samgöngum til Vestfjarða Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir þörf á mannsæmandi samgöngum á Vestfjörðum. Mikill vöxtur væri á svæðinu og gera þyrfti mun betur þegar kæmi að samgöngum. 9.7.2023 14:30
Ók um á vespu og skaut fólk af handahófi Lögreglan í New York segist hafa handtekið mann sem ók um götur borgarinnar í gær á vespu og skaut á fólk af handahófi. Hann skaut einn 87 ára gamlan mann til bana og særði þrjá aðra. 9.7.2023 14:19
Þekktur sjónvarpsmaður sendi táningi fé fyrir nektarmyndir Ónafngreindur en vel þekktur sjónvarpsmaður hjá Breska ríkisútvarpinu (BBC) stendur frammi fyrir ásökunum um að hafa borgað táningi fyrir kynferðislegt myndefni. Hann er sagður hafa lagt þúsundir punda inn á reikning stúlkunnar. 9.7.2023 11:00
Kerecis, hvalveiðar og Lindarhvoll í Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til klukkan tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni. 9.7.2023 09:55
Rússar reiðir eftir að Erdogan sleppti verjendum Maríupól Fimm af leiðtogum úkraínskra hermanna í Maríupól fengu í gær að fara frá Tyrklandi til Úkraínu, í fylgd með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Það að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyft þeim að fara til Úkraínu hefur reitt yfirvöld í Moskvu til reiði. 9.7.2023 08:57
Þrjú útköll vegna manns sem hékk á bjöllunni Lögregluþjónar þurftu þrisvar sinnum í nótt að hafa afskipti af ölvuðum manni sem var að hringja dyrabjöllum í fjölbýlishúsi. Maðurinn lét aldrei segjast og var að lokum handtekinn en samkvæmt dagbók lögreglu streittist maðurinn á móti handtöku og var vistaður í fangaklefa vegna ástands hans. 9.7.2023 07:57
Enn talsverð virkni á Reykjanesi Enn er talsverð virkni á Reykjanesi og hefur hún lítið breyst undanfarna daga. Stærsti skjálfti næturinnar varð um korter yfir tólf í nótt og var hann 4,1 að stærð. Skömmu áður greindist 3,8 skjálfti. 9.7.2023 07:25
Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims. 8.7.2023 14:13
Bein útsending: Bylgjulestin á Kótelettunni á Selfossi Bylgjulestinni verður ekið á Selfoss í dag þar sem bæjarhátíðin Kótelettan stendur yfir. Veðrið leikur við Sunnlendinga í dag og verður mikið um að vera. 8.7.2023 11:31