Telja þúsundir Rússa hafa fallið við Avdívka Leyniþjónustur Bandaríkjanna áætla að um þrettán þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í áhlaupum Rússa í austurhluta Úkraínu frá því í október og þá sérstaklega áhlaupinu á bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu. Þá hafi Rússar misst rúmlega 220 skrið- og bryndreka á þessu tímabili. 12.12.2023 17:05
Hætta rekstri nokkrum dögum eftir útgáfu umdeilds leiks Framleiðendur hins umdeilda leiks, The Day Before, hafa hætt rekstri innan við viku eftir að leikurinn var gefinn út. Fyrirtækið var í kjölfar útgáfunnar sakað um að svindla á fólki og segja ósatt um leikinn í gegnum árin. 12.12.2023 15:50
Norskt tankskip varð fyrir eldflaug frá Hútum Norska tankskipið Strinda varð í gærkvöldi fyrir eldflaug sem skotið var af Hútum í Jemen. Hútar hafa heitið því að stöðva ferð allra skipa sem siglt er til Ísrael og hafa gert árásir á fjölda skipa á undanförnum dögum. 12.12.2023 13:47
Epic Games vinna mikinn sigur á Google Google hefur misnotað aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum og takmarka samkeppni á sviði forrita fyrir snjalltæki sem nota Android-stýrikerfi Google. Þessari niðurstöðu komust kviðdómendur í máli Epic Games gegn Google að í San Francisco í gær en niðurstaðan gæti haft mikil á áhrif á stýrikerfið, sem notað er út um allan heim. 12.12.2023 11:09
Sögðu þungunina ekki ógna lífi móðurinnar nóg Hæstiréttur Texas komst að þeirri niðurstöðu í gær að hin 31 árs gamla Kate Cox megi ekki fara í þungunarrof, þó fóstri hennar sé ekki hugað líf. Þar með sneri dómstóllinn niðurstöðu neðra dómstigs í ríkinu sem sagði hana mega það eftir að fóstur hennar greindist með banvænan kvilla. 12.12.2023 09:50
Heita þremur sigrum í Warzone Strákarnir í GameTíví stefna á þrjá sigra í Warzone í kvöld. Leikurinn hefur tekið nokkrum breytingum og er til að mynda barist á nýju korti. 11.12.2023 19:30
Fimmtán refsað vegna Discord-lekans Fimmtán starfsmönnum flughers Bandaríkjanna var refsað vegna Discord-lekans svokallaða. Jack Teixeira er sakaður um að hafa lekið mikið af leynilegum gögnum á netið en rannsókn hefur leitt í ljós að yfirmenn hans hafi brugðist og að menning andvaraleysis hafi gert honum kleift að leka gögnunum. 11.12.2023 16:58
Navalní horfinn úr fangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, missti af réttarhöldum í morgun, eftir að lögmenn hans höfðu ekki náð tali af honum í tæpa viku. Hann átti að sækja réttarhöldin gegnum fjarfundarbúnað en nú segja forsvarsmenn fanganýlendunnar þar sem hann hefur verið í afplánun að hann sé ekki lengur þar. 11.12.2023 14:32
Hershöfðingjar funda um mögulegt vopnahlé Hershöfðingjarnir Mohamed Hamdan Daglo og Abdel Fattah al-Burhan hafa samþykkt að hittast til að reyna að binda enda á blóðuga styrjöld í Súdan. Gífurleg óreiða hefur ríkt í Súdan undanfarna mánuði og hafa þúsundir fallið vegna átaka hershöfðingjanna og sveita þeirra. 11.12.2023 12:45
Leita aðstoðar við að stöðva árásir Húta á flutningaskip Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa biðlað til ráðamanna annarra þjóða til að taka þátt í að tryggja öryggi skipa á Rauðahafi, eftir ítrekaðar árásir Húta í Jemen á flutningaskip og herskip á svæðinu. 11.12.2023 11:01