Jamaíka stefnir á HM 2022 með hjálp fimmtán nýrra leikmanna frá Englandi Það er ljóst að á Jamaíka eru menn stórhuga og ætla sér að mæta til leiks á HM 2022 í Katar. Knattspyrnusamband landsins ætlar sér þó óhefðbundnar leiðir í leið sinni á mótið sem fram fer undir lok árs 2022. 4.3.2021 23:30
Klopp segir tap kvöldsins mikið áfall Það var þungt hljóðið í Jürgen Klopp – þjálfara Englandsmeistara Liverpool – eftir fimmta tap liðsins í röð á Anfield. Að þessu sinni var það Chelsea sem fór með þrjú stig heim frá Liverpool-borg, lokatölur 0-1 þökk sé sigurmarki Mason Mount. 4.3.2021 23:00
Jón Axel frábær er Skyliners nálgast sæti í úrslitakeppninni Jón Axel Guðmundsson átti frábæran leik er Fraport Skyliners vann níu stiga sigur á Vechta í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 84-75. 4.3.2021 22:46
Mason Mount tryggði Chelsea sigur á Anfield | Fimmta tap Liverpool í röð á heimavelli Hörmulegt gengi Liverpool virðist engan enda ætla að taka. Liðið tapaði 0-1 gegn Chelsea er liðin mættust á Anfield í kvöld. 4.3.2021 22:00
Sanchez og Lukaku sáu til þess að Inter jók forskot sitt á toppi deildarinnar Alexis Sanchez var óvænt hetja Inter Milan er liðið vann 2-1 sigur á Parma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. 4.3.2021 21:45
Síðari hálfleikur varð Valencia að falli Það eru hverfandi líkur á því að Valencia komist í úrslitakeppni EuroLeague. Martin Hermannsson og félagar töpuðu fyrir Maccabi Tel Aviv með tólf stiga mun í kvöld, lokatölur 84-72. 4.3.2021 21:16
Keflavík valtaði yfir Þórsara Keflavík fór illa með Þór frá Akureyri er liðin mættust í Dominos deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Keflavík 102-69 heimamönnum í vil. 4.3.2021 21:01
Hress Gylfi Þór grínaðist með að sigurinn hafi aldrei verið í hættu Everton vann nauman 1-0 sigur á West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lærisveinar Sam Allardyce jöfnuðu metin í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Gylfi Þór Sigurðsson var spurður út í það í viðtali að leik loknum. 4.3.2021 20:35
Tottenham slapp með skrekkinn gegn Fulham Tottenham Hotspur vann 1-0 útisigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eina mark leiksins kom eftir að Dele Alli – sem byrjaði leikinn óvænt – átti skot sem fór í Tosin Adarabioyo, varnarmann Fulham. 4.3.2021 20:00
Everton í Meistaradeildarsæti eftir að Gylfi Þór lagði upp sigurmarkið Innkoma Gylfa Þórs Sigurðssonar skipti sköpum fyrir Everton í kvöld. Íslenski miðjumaðurinn kom inn af varamannabekk liðsins og lagði upp eina mark þess í 1-0 útisigri á West Bromwich Albion í kvöld. 4.3.2021 19:55