Vieira orðaður við stjórastöðuna hjá Palace Fyrrum Arsenal goðsögnin Patrick Vieira gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í sumar. Þessi 44 ára gamli Frakki er orðaður við stjórastöðuna hjá Crystal Palace en liðið leitar nú að arftaka Roy Hodgson. 19.4.2021 23:00
Ekkert bólar á nýjum samning fyrir Messi Barcelona hefur ekki enn boðið hinum 33 ára gamla Lionel Messi nýjan samning en núverandi samningur hans rennur út í sumar. 19.4.2021 17:01
Óttast að De Bruyne gæti misst af undanúrslitaleikjum Meistaradeildar Evrópu Það kemur í ljós síðar í dag hversu alvarleg meiðsli Kevin De Bruyne eru en menn eru svartsýnir hjá Manchester City. Talið er að belgíski miðjumaðurinn gæti misst af báðum undanúrslitaleikjum Meistaradeildar Evrópu. 19.4.2021 16:30
Kvennalandsliðið fellur um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fellur um eitt sæti á nýjasta heimslista FIFA. Liðið situr nú í 17. sæti listans. 19.4.2021 15:31
UEFA tilkynnir nýtt fyrirkomulag Meistara- og Evrópudeildar Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA tilkynnti í dag nýtt fyrirkomulag á Evrópu-keppnum sínum. Um er að ræða bæði Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina. Tekur fyrirkomulagið gildi árið 2024 þegar núverandi sjónvarpssamningur rennur sitt skeið. 19.4.2021 14:25
Fréttaskýring: Ofurdeild Evrópu Ofurdeild þetta, ofurdeild hitt. Heitasta umræðuefni dagsins er eðlilega títtnefnd ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Hér að neðan verður kafað ofan í hvað felst í hugmyndinni, hvernig henni verður háttað og almennt allt sem henni viðkemur. 19.4.2021 12:20
Liðin á bakvið ofurdeildina skuldug upp fyrir haus Í gærkvöld birtu tólf knattspyrnufélög drög að stofnun svokallaðrar ofurdeildar Evrópu. Þótt ástæðan sé sögð vera jákvæð fyrir framþróun fótboltans í heild sinni er ljóst að liðin munu hagnast gríðarlega. 19.4.2021 11:01
Pepsi Max-spáin 2021: Suðuramerískur dans við falldrauginn Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Leikni 12. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. 19.4.2021 10:04
Yfirgefa liðið eftir fall úr efstu deild Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir munu ekki leika með danska handknattleiksliðinu Vendsyssel á næstu leiktíð. Liðið féll á dögunum úr efstu deild og er ljóst að margir leikmenn liðsins hugsa sér til hreyfings. 19.4.2021 06:01
Tólf knattspyrnufélög hafa staðfest að þau ætli sér að stofna ofurdeild Evrópu Orðrómar dagsins reyndust sannir. Í kvöld var staðfest að tólf lið séu svokallaðir „stofnmeðlimir“ í því sem á að verða ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. 18.4.2021 23:04