Dagskráin í dag: Stórleikur á Spáni, deildarmeistaratitill í húfi í Safamýri og svo mikið meira Það er svo sannarlega nóg um að vera á Stöð 2 Sport í dag. Alls eru 19 beinar útsendingar á dagskránni í dag. 8.5.2021 06:00
KA og Leiknir mætast á Dalvíkurvelli Heimaleikur KA gegn Leikni Reykjavík í Pepsi Max deild karla hefur verið færður til Dalvíkur. 7.5.2021 23:15
Zion með brákaðan fingur og frá ótímabundið Zion Williamson, miðherji New Orleans Pelicans í NBA-deildinni, virðist hafa lokið leik á tímabilinu en hann er með brákaðan fingur. 7.5.2021 21:31
Meistaradeildarsæti Leicester í hættu eftir afhroð gegn Newcastle Newcastle United vann ótrúlegan 4-2 útisigur á Leicester City í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leicester City hefur átt Meistaradeildarsætið víst nær allt tímabilið en allt í einu virðist það í hættu. 7.5.2021 20:55
Pétur Theódór með þrennu í sigri Gróttu og ÍBV tapaði illa í Grindavík Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Grótta vann Þór Akureyri 4-3 og Grindavík vann ÍBV 3-1. 7.5.2021 20:20
Elías Már skoraði í tapi Elías Már Ómarsson kom Excelsior yfir er liðið heimsótti Jong AZ í hollensku B-deildinni í kvöld en heimamenn svöruðu með tveimur mörkum og unn 2-1. 7.5.2021 20:16
Sigrar hjá Íslendingaliðunum Íslendingalið OB og Darmstadt unnu sína leiki í dönsku úrvalsdeildinni og þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. 7.5.2021 19:15
Sif sneri aftur er Kristianstad tyllti sér á toppinn Kristianstad vann Vittsjö 1-0 í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. 7.5.2021 19:00
Elvar Már gaf 17 stoðsendingar í grátlegu tapi Siauliai tapaði með eins stigs mun gegn Neptunas í tvíframlengdum leik í litáenska körfuboltanum í dag, lokatölur 107-106. Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik í liði Siauliai að venju. 7.5.2021 18:30
Tryggvi Snær og félagar töpuðu í undanúrslitum Tryggvi Snær Hlinason og félagar í spænska körfuboltaliðinu Zaragoza töpuðu í dag gegn tyrkneska liðinu Pinar Karsiyaka í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, lokatölur 84-79 Tyrkjunum í vil. 7.5.2021 18:15