Markvörður Brentford frá næstu mánuðina | Gæti opnast pláss fyrir Patrik Sigurð David Raya, markvörður enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, meiddist illa gegn Leicester City um liðna helgi og verður frá næstu fjóra til fimm mánuðina. Gæti það opnað tækifæri fyrir Patrik Sigurð Gunnarsson sem er í dag á láni hjá Viking í Noregi. 26.10.2021 23:31
Óheppnin eltir Verratti á röndum: Frá næstu vikurnar vegna meiðsla Ítalski miðjumaðurinn Marco Verratti hefur lítið náð að spila með París Saint-Germain á leiktíðinni vegna meiðsla. Nú er ljóst að hann verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla á mjöðm. 26.10.2021 23:00
Ótrúlegt gengi AC Milan heldur áfram AC Milan lyfti sér upp á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, með 1-0 sigri á Torino í kvöld. 26.10.2021 22:15
Chelsea og Sunderland áfram eftir vítaspyrnukeppni Chelsea og Sunderland tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins. Bæði lið fóru áfram eftir vítaspyrnukeppni. 26.10.2021 21:45
Twitter um stórsigur Íslands: „Frábær stemning í þessu íslenska liði“ Ísland vann einkar þægilegan 5-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2023 í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn var síst of stór og hefði liðið hæglega getað bætt við mörkum. Hér að neðan má sjá það helsta sem fram fór á Twitter á meðan leik stóð. 26.10.2021 21:15
Amanda eftir fyrsta byrjunarliðsleikinn: „Sköpuðum fullt af færum“ Amanda Andradóttir lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir íslenska landsliðið er Ísland lagði Kýpur 5-0 í undankeppni HM 2023 í kvöld. Amanda kom mikið við sögu og lagði upp eitt mark. Hún var því eðlilega nokkuð sátt í leikslok. 26.10.2021 21:10
Þorsteinn: „Maður vill alltaf fleiri mörk“ Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var nokkuð sáttur með 5-0 sigur Íslands á Kýpur í undankeppni HM 2023 í kvöld. Hann hefði þó viljað sjá fleiri mörk líta dagsins ljós. 26.10.2021 20:45
Arsenal komið í átta liða úrslit deildarbikarsins Tvö mörk í síðari hálfleik dugðu til að tryggja Arsenal áfram í enska deildarbikarnum. Lærisveinar Mikel Arteta unnu 2-0 sigur á Leeds United á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld. 26.10.2021 20:35
Bjarki Már með fjögur mörk í frábærum sigri á Nantes Lemgo vann eins marks útisigur á Nantes í Evrópukeppni karla í handbolta í kvöld, lokatölur 27-28. Bjarki Már Elísson gerði fjögur mörk í liði Lemgo. 26.10.2021 20:20
Segja Aron Jóhannsson vera á leið til Vals Svo virðist sem framherjinn Aron Jóhannsson muni leika með Val í efstu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. 26.10.2021 19:01