Erlingur meðal þeirra sem er orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Noregs Erlingur Richardsson, þjálfari karlaliðs ÍBV hér á landi og landsliðsþjálfari Hollands í handbolta er meðal þeirra sem er orðaður við landsliðsþjálfarastöðu norska landsliðsins. Þetta kemur fram á vef norska fjölmiðilsins TV2. 30.1.2022 07:01
Dagskráin í dag: Lærisveinar Waynes Rooney, Lakers, Martin, golf, Blast Premier og tengdasonur Mosfellsbæjar Það er ótrúleg dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. 30.1.2022 06:01
Baðst afsökunar eftir að myndband náðist af honum að segja „F*** Brentford“ Ivan Toney, ein af stjörnum nýliðum Brentford í ensku úrvalsdeildinni, kom sér í ágætis vandræði þegar hann lét orðin „F*** Brentford“ falla á meðan óprúttinn aðili tók hann upp. Toney hefur beðist afsökunar á athæfinu. 29.1.2022 23:00
Barcelona staðfestir komu Traoré Spænska stórveldið Barcelona hefur staðfest endurkomu vængmannsins Adama Traoré. Hann gengur til liðs við Börsunga á láni frá enska knattspyrnufélaginu Wolves en Barcelona getur keypt leikmanninn á 29 milljónir punda í sumar. 29.1.2022 22:30
Kom Búrkína Fasó í undanúrslit en fær ekki að taka þátt í þeim Hinn 19 ára gamli Dango Ouattara átti einkar áhugaverðan leik er Búrkína Fasó komst í undanúrslit Afríkukeppninnar þökk sé 1-0 sigri á Túnis í kvöld. Outtara skoraði sigurmarkið ásamt því að næla sér í rautt spjald. 29.1.2022 22:01
Newcastle fær Guimarães frá Lyon Enska knattspyrnufélagið Newcastle United heldur áfram að styrkja sig. Miðjumaðurinn Bruno Guimarães er talinn hafa náð samkomulagi við enska félagið til ársins 2026. 29.1.2022 21:30
Everton vill Lampard sem næsta þjálfara Enska knattspyrnufélagið Everton hefur boðið Frank Lampard að verða næsti þjálfari liðsins. Lampard hefur verið án starfs síðan hann var látinn fara frá Chelsea í janúar á síðasta ári. 29.1.2022 21:01
Ekambi skaut Kamerún í undanúrslit Karl Toko Ekambi skoraði bæði mörk Kamerún í 2-0 sigri á Gambíu í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu í kvöld. Kamerún er því komið í undanúrslit. 29.1.2022 20:30
Segja Tom Brady hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna Samkvæmt heimildum ESPN hefur leikstjórnandinn Tom Brady ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ferill hans í NFL-deildinni spannar 22 ár og á þeim tíma varð hann sjö sinnum meistari. 29.1.2022 20:01
Ekki á leið til Arsenal eftir að viðræðurnar fóru í vaskinn Brasilíski miðjumaðurinn Arthur er ekki á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal á láni eftir að viðræður þess við ítalska félagið fóru í vaskinn. Það er ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano sem greinir frá tíðindunum á Twitter-síðu sinni. 29.1.2022 18:16