Jón Dagur lagði upp og nældi sér í spjald í grátlegu tapi Jón Dagur Þorsteinson lagði upp fyrra mark AGF í grátlegu tapi gegn Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 3-2 Vejle í vil. Jón Dagur og Mikael Anderson voru báðir í byrjunarliði AGF í kvöld. 25.2.2022 20:10
Udinese náði í stig á San Siro AC Milan og Udinese gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik kvöldsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heimamenn í Milan misstigu sig í toppbaráttunni en þeir eru í harðri baráttu við Inter og Napoli um ítalska meistaratitilinn. 25.2.2022 19:45
Fær frí vegna stríðsins í Úkraínu Andriy Yarmolenko, leikmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham United, verður ekki með liðinu um helgina en Yarmalenko kemur frá Úkraínu og er kominn í nokkurra daga frí vegna stöðunnar þar í landi. Oleksandr Zinchenko, leikmaður Manchester City, verður hins vegar til taks ef þess þarf. 25.2.2022 19:15
Nýr miðvörður Víkings um veðrið á Íslandi: „Getur bara orðið betra úr þessu“ „Ég varð mjög spenntur þegar ég heyrði um félagið. Er að spila í Evrópu á næstu leiktíð, unnu deild og bikar í fyrra og stefna á að verja þá í ár,“ sagði Oliver Ekroth, nýjasti liðsmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings við Vísi og Stöð 2 Sport eftir undirskrift í dag. 25.2.2022 18:35
Aberdeen heiðraði Sir Alex Ferguson með styttu | Afhjúpaði hana sjálfur Sir Alex Ferguson er hvað frægastur fyrir að gera Manchester United að einu mesta stórveldi knattspyrnusögunnar. Hann afrekaði ekki síðri hluti með Aberdeen í Skotlandi áður en hann hélt til Manchester-borgar árið 1986 og nú hefur skoska félagið ákveðið að heiðra Skotann magnaða. 25.2.2022 18:01
Sverrir Þór tekur við Grindavík Sverrir Þór Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari liðs Grindavíkur í Subway-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar hafa verið án þjálfara síðan Daníel Guðni Guðmundsson var látinn taka poka sinn á dögunum. 25.2.2022 17:30
Nei eða Já: Myndir þú taka Bronny James ef þú vissir að karl faðir hans myndi fylgja með? Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ hélt áfram göngu sinni í síðasti þætti af Lögmál leiksins. Stærsta spurningin snerist að þessu sinni um LeBron James og son hans, Bronny James. 22.2.2022 07:00
Dagskráin í dag: Titilvörn Chelsea heldur áfram Meistaradeild Evrópu er það helsta sem er að frétta á rásum Stöðvar 2 Sport í kvöld. Evrópumeistarar Chelsea halda áfram titilvörn sinni. 22.2.2022 06:00
Hættir með HK eftir tímabilið Halldór Harri Kristjánsson mun hætta sem þjálfari kvennaliðs HK í handbolta að tímabilinu loknu. 21.2.2022 23:31
Ísak Bergmann einfaldlega skilinn eftir utan hóps | Lék með varaliðinu í dag Það vakti mikla athygli er Ísak Bergmann Jóhannesson var ekki í leikmannahóp FC Kaupmannahafnar er danska úrvalsdeildin í knattspyrnu fór aftur af stað eftir vetrarfrí um helgina. Þjálfari liðsins sagði Ísak Bergmann einfaldlega hafa verið skilinn eftir utan hóps að þessu sinni. 21.2.2022 23:01