Hreinsanir hafnar á starfsliði Man Utd og búist við allt að tíu nýjum leikmönnum í sumar Tveir helstu njósnarar Manchester United hafa yfirgefið félagið. Virðist þetta vera upphafið að einni allsherjar hreinsun á bæði leikmannahóp og starfsliði félagsins. Ralf Rangnick, tímabundinn þjálfari liðsins, býst við sex til tíu leikmönnum í sumar. 20.4.2022 16:15
Nýtt ár, nýtt lið en sami gamli Óskar Örn Óskar Örn Hauksson hóf lífið eftir KR á sama hátt og undanfarin ár. Með þrumufleyg fyrir utan teig er Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við ÍA í fyrstu umferð Bestu deildar karla. 20.4.2022 15:30
Kyrie heldur áfram að sanka að sér sektum Kyrie Irving, leikmanni Brooklyn Nets í NBA-deildinni, tókst enn á ný að koma sér í vandræði er Nets tapaði með eins stigs mun gegn Boston Celtics í úrslitakeppninni. 20.4.2022 14:47
Rúnar Þór spilaði kviðslitinn Bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson var nokkuð óvænt í byrjunarliði Keflavíkur er liðið hóf leik í Bestu deild karla. Rúnar Þór hefur verið að glíma við meiðsli á leiktíðinni og er kviðslitinn en spilaði samt sem áður 75 mínútur í 4-1 tapi á Kópavogsvelli í gær. 20.4.2022 14:01
Guðni Th. um aðstöðuleysi á Íslandi: „Þjóðarhöll stendur ekki undir nafni ef hana má ekki nota“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti í Bítið á Bylgjunni til að ræða stöðu þjóðarleikvanga Íslands í boltaíþróttum. Hann vill nýja þjóðarhöll hið fyrsta. 20.4.2022 12:00
Kynningarfundur Bestu deildar kvenna: Val spáð Íslandsmeistaratitlinum Kynningarfundur fyrir Bestu deild kvenna í fótbolta fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í dag. Er því spáð að Íslandsmeistarar Vals muni verja titil sinn. Fundinn má sjá í heild sinni neðst í fréttinni. 20.4.2022 11:31
Sjáðu mörkin: Arnór Smára hetja Vals, Breiðablik fór á kostum og ÍA bjargaði stigi í lokin Öll mörkin úr leikjum gærdagsins úr Bestu deild karla eru komin inn á Vísi. Þau má sjá hér að neðan. 20.4.2022 11:00
Wimbledon stefnir á að banna keppendur frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi Eitt virtasta tennismót heims stefnir á að banna keppendum frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi að taka þátt í ár vegna innrásar Rússlands í Úkraínu og stuðnings Hvíta-Rússlands við innrásina. Frá þessu er greint á vef New York Times. 20.4.2022 10:31
Fyrstur til að skora fimm deildarmörk mörk á sama tímabilinu gegn Man Utd Það verður seint sagt að Manchester United hafi riðið feitum hesti gegn Liverpool í viðureignum liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Man Utd var kjöldregið í báðum leikjum liðanna, markatalan 9-0 og þá skoraði Mohamed Salah samtals fimm mörk í leikjunum tveimur. 20.4.2022 09:01
Síungur Birkir Már kominn með fjögur hundruð deildarleiki á ferlinum Birkir Már Sævarsson náði mögnuðum áfanga er Valur vann ÍBV 2-1 í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Hinn síungi Birkir Már var nefnilega að hefja sitt 20. tímabil í meistaraflokki og spilaði þarna sinn 400. deildarleik á ferlinum. 20.4.2022 08:30