Lögmál leiksins: Fáránlegt að henda Ben Simmons í ljónið sem vörn Boston er Farið var yfir hvað hefði gerst hefði Ben Simmons snúið aftur á völlinn í fjórða leik Brooklyn Nets og Boston Celtics. Nets eru 3-0 undir og nú er ljóst að Simmons verður ekki með í fjórða leik liðanna. 25.4.2022 18:01
Besta-spáin 2022: Stuð á Suðurlandi og Stjarnan skín Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Selfoss og Stjarnan endi í 4. og 3. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 25.4.2022 10:01
Besta-spáin 2022: Hetjur snúa heim í norður en uppbyggingin í Dalnum á enda Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Þór/KA og Þróttur Reykjavík endi í 6. og 5. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 24.4.2022 10:00
Besta-spáin 2022: Má ekki miklu muna í Mosó á meðan Eyjakonur vilja horfa upp töfluna Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Afturelding og ÍBV endi í 8. og 7. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 23.4.2022 10:00
Leggur hanskana á hilluna eftir bardaga kvöldsins: Er á betri stað en síðast Hnefaleikakappinn Tyson Fury segist ekki geta beðið eftir því að leggja hanskana á hilluna. Hann hefur fengið mikla umfjöllun fyrir sigra sína innan hringsins og baráttu við þunglyndi utan hans. 23.4.2022 09:01
Dagskráin í dag: Undanúrslit í körfubolta, spennandi leikir í NBA, stórleikur á Ítalíu, Stórmeistaramót og golf Hvað er ekki á dagskrá er í raun spurningin sem við ættum að spyrja okkur að. Undanúrslit í Subway-deild karla í körfubolta, Serie A, spænski körfuboltinn, enski boltinn, úrslitakeppni NBA, Stórmeistaramót Ljósleiðaradeildarinnar og golf frá morgni til kvölds. 23.4.2022 06:00
Yfirgefur deildarmeistara Fjölnis og tekur við Hamri í 1. deild karla Halldór Karl Þórsson mun hætta sem þjálfari karla og kvennaliðs Fjölnis í sumar. Þetta herma heimildir Körfunnar.is. 22.4.2022 23:16
Öruggur sex marka sigur gegn Mexíkó: Úrslitaleikur gegn Belgíu á laugardag Ísland vann öruggan 7-1 sigur á Mexíkó í þriðja leik sínum í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í íshokkí sem nú fer fram í Skautahöllinni í Laugardal. Ísland mætir Belgíu í úrslitaleik annað kvöld um sæti í A-riðli. 22.4.2022 23:00
Miðjumaðurinn eftirsótti neitar að skrifa undir nýjan samning Declan Rice, miðjumaður enska fótboltaliðsins West Ham United og enska landsliðsins, neitar að skrifa undir nýjan samning við félagið. Alls hefur hann hafnað þremur samningstilboðum félagsins. Ýtir það undir þær vangaveltur að hann gæti verið á förum frá félaginu 22.4.2022 22:45
Höttur komið í efstu deild á nýjan leik Höttur frá Egilsstöðum tryggði sér í kvöld sæti í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. Hattarmenn lögðu Álftanes 99-70 og unnu þar með einvígi liðanna um sæti í efstu deild örugglega 3-0. 22.4.2022 22:31