Rapinoe og Biles fá Frelsisorðu Bandaríkjaforseta Hvíta húsið tilkynnti í dag að knattspyrnukonan Megan Rapinoe yrði meðal þeirra sem myndi fá Frelsisorðu Bandaríkjaforseta. Fimleikadrottningin Simone Biles verður einnig meðal þeirra sem hlotnast sá heiður að þessu sinni. 2.7.2022 08:01
Ten Hag lætur til sín taka á æfingasvæðinu Leikmenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United mættu hófu undirbúningstímabil sitt á mánudaginn. Þeir hafa nú fengið eina viku með nýjum þjálfara liðsins og virðist sem hann hugi að hverju smáatriði ásamt því að bjóða upp á virkilega þungar æfingar. 2.7.2022 07:01
Dagskráin í dag: Toppliðið mætir til Eyja og nóg af golfi Breiðablik heimsækir Vestmannaeyjar í Bestu deild karla í fótbolta á Stöð 2 Sport í dag. Þá er nóg um að vera í heimi golfsins. 2.7.2022 06:02
Katrín Tanja komst ekki á áttundu heimsleikana í röð Katrín Tanja Davíðsdóttir mun ekki taka þátt á heimsleikunum í CrossFit í ár. Katrín Tanja hefur tekið þátt á síðustu sjö heimsleikum en mun ekki bæta þeim áttundu við í safnið. 1.7.2022 23:01
Nóg um að vera í Lengjudeildinni: KV vann á Ísafirði Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. KV vann magnaðan 4-2 sigur á Vestra á Ísafirði, Kórdrengir lögðu Gróttu 1-0 en hinum tveimur leikjunum lauk með 2-2 jafntefli. 1.7.2022 22:16
Frakkar hita upp fyrir EM með stórsigri Frakkland mætti Víetnam í síðasta leik liðsins fyrir EM kvenna sem hefst í Englandi þann 6. júlí. Lauk leiknum með 7-0 sigri Frakklands. 1.7.2022 21:30
England Evrópumeistari U-19 ára landsliða Enska U-19 ára landslið karla í knattspyrnu varð í kvöld Evrópumeistari eftir 3-1 sigur á Ísrael í framlengdum leik. Stigu tveir leikmenn Aston Villa upp þegar mest á reyndi. 1.7.2022 20:45
Ensk stórlið mokgræða á undirbúningstímabilinu: Gætu fengið 485 milljónir fyrir leik Stórlið ensku úrvalsdeildarinnar eru loks á leið í það sem mætti kalla eðlilegt undirbúningstímabil eftir að kórónufaraldurinn lék heiminn grátt. Fagna gjaldkerar liðanna eflaust hvað mest ef marka má tölur sem birtust á The Athletic. 1.7.2022 20:00
Malmö tapaði óvænt gegn Sundsvall: Mæta Víkingum næst Sænska meistaraliðið Malmö tapaði nokkuð óvænt gegn Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Liðið mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku. 1.7.2022 19:10
Lenglet á leið til Tottenham Franski miðvörðurinn Clément Lenglet, leikmaður Barcelona, virðist vera á leið til Tottenham Hotspur. Félögin eiga eftir að semja um kaupverðið en leikmaðurinn hefur samið um kaup og kjör við Lundúnaliðið. 1.7.2022 18:00