Óvissa ríkir um framtíð Gavi vegna skráningarvesens og baráttu Barcelona við La Liga Hinn gríðarlegi efnilegi Gavi gæti verið á leið frá Barcelona á frjálsri sölu þar sem samningur hans við félagið gæti verið ógildur. Málið er flókið og er hluti af ástæðunni bakvið þeirrar miklu spennu sem nú ríkir milli Barcelona og spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga. 15.3.2023 16:30
Oklahoma að valda Lakers og Dallas vandræðum Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Milwaukee Bucks lagði Kevin Durant-laust lið Phoenix Suns nokkuð þægilega. Los Angeles Lakers sneri aftur á sigurbraut og þá vann Oklahoma City Thunder góðan endurkomusigur á Brooklyn Nets. Sá sigur lagði stein í götu Dallas Mavericks sem og Lakers. 15.3.2023 16:01
Toppliðið þarf að sigra Valsgrýluna Keflavík og Valur, topplið Subway-deildar kvenna í körfubolta,. Keflavík trónir sem stendur á toppi deildarinnar með 21 sigur og aðeins þrjú töp. Þar á eftir koma Valskonur með 20 sigra og fjögur töp. Það sem er einkar athyglisvert við þessa tölfræði er að tvö af þremur töpum Keflavíkur hafa komið gegn Val. 15.3.2023 13:01
Þjálfarinn stökk frá borði skömmu áður en Ísland mætir í heimsókn Martin Stocklasa, fyrrverandi þjálfari landsliðs Liechtenstein, sagði starfi sínu lausu fyrr í þessum mánuði. Það má því segja að Liechtenstein verði þjálfaralaust þegar Ísland mætir í heimsókn í undankeppni EM 2024. 15.3.2023 11:00
Hefur sýnt og sannað að enn er hægt að koma á óvart á gervihnattaöld Georgímaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, mögulega betur þekktur sem Kvaradona, hefur undanfarna mánuði heillað knattspyrnuaðdáendur á Ítalíu sem og um gervalla Evrópu með ótrúlegum hæfileikum sínum. Reikna má með að hann spæni upp vænginn þegar Napoli tekur á móti Eintracht Frankfurt í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 15.3.2023 10:31
Garnacho frá næstu vikurnar Ungstirnið Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, verður frá næstu vikurnar eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í markalausu jafntefli liðsins við Southampton í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. 15.3.2023 09:31
Sjáðu mörkin: Bæði fljótastur og yngstur til að skora þrjátíu í Meistaradeild Evrópu Erling Braut Håland er svo sannarlega engum líkur. Norski framherjinn hefur nú skorað 30 mörk í Meistaradeild Evrópu, í aðeins 25 leikjum. Það gerir hann fljótasta leikmann sögunnar til að ná þeim áfanga sem og þann yngsta. Mörkin fimm sem Håland skoraði í gær, þriðjudag, má sjá neðst í fréttinni. 15.3.2023 09:00
Henderson ekki með á Bernabéu Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður ekki með sínum mönnum í kvöld þegar liðið mætir á Santiago Bernabéu í Madríd og reynir að snúa einvíginu gegn Real Madríd sér í vil. Stefan Bajcetic verður einnig fjarverandi í kvöld. 15.3.2023 07:30
HM karla í knattspyrnu mun innihalda 48 þjóðir árið 2026 Talið er næsta öruggt að Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, muni á næstunni samþykkja breytingu á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Mótið sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó mun innihalda 48 þjóðir og verða stærsta HM sögunnar. 15.3.2023 07:01
Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu og Toppslagur í Keflavík Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Við fáum sannkallaðan stórleik í Subway-deild kvenna í körfubolta þar sem toppliðin tvö, Keflavík og Valur mætast. Hið stórskemmtilega lið Napoli tekur svo á móti Eintracht Frankfurt í Meistaradeild Evrópu. 15.3.2023 06:01