Rekinn klukkutímum eftir að hafa unnið leikinn sem hann „mátti ekki“ vinna Houston Texans vann dramatískan 32-31 sigur á Indianapolis Colts í lokaleik NFL tímabilsins í gær en þjálfarinn var engu að síður rekinn aðeins nokkrum klukkutímum eftir leikinn. 9.1.2023 16:30
Tvær útgáfur af hægri vængnum í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu um helgina Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilaði tvo æfingarleiki á móti Þjóðverjum um helgina og það er ekki hægt að segja annað en að þar hafi breidd íslenska liðsins á hægri vængnum komið í ljós. 9.1.2023 14:31
Guðjón Valur: Ég er svo heppinn að vera með tvo kolvitlausa Eyjamenn Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach í þýsku bundesligunni en lið hans er nú í níunda sæti deildarinnar sem nýliði í deildinni. 9.1.2023 13:31
Roberto Martinez tekur við portúgalska landsliðinu Roberto Martinez, fyrrum þjálfari Belga, er tekinn við sem þjálfari portúgalska landsliðsins. Portúgalska sambandið staðfesti þetta á sínum miðlum. 9.1.2023 13:07
Kevin Durant meiddist á hné Kevin Durant fer í myndatöku í dag eftir að hafa meiðst á hné í sigurleik Brooklyn Nets á Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta í gær. 9.1.2023 12:30
Snögg viðbrögð þjálfarans björguðu lífi leikmanns sem fékk skautablað í hálsinn Íshokkíleikmaðurinn Eric Huss getur þakkað styrktarþjálfara liðsins síns að hann er enn meðal okkar eftir óhuggulegt atvik á dögunum. 9.1.2023 12:01
Héldu verðlaunaafhendinguna án sigurvegarans Sænska skíðagöngukonan Frida Karlsson tryggði sér um helgina sigur í Tour de Ski skíðagöngukeppninni sem lauk á Ítalíu í gær. 9.1.2023 11:01
Aaron Rodgers og félagar klúðruðu þessu: Svona lítur úrslitakeppni NFL út Lokaumferð deildarkeppni NFL-deildarinnar fór fram um helgina og nú er því endanlega ljóst hvaða lið komust í úrslitakeppnina, hvaða lið eru á leið í sumarfrí og hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem byrjar strax um næstu helgi. 9.1.2023 10:00
Anníe Mist og Katrín Tanja mældu vöðvana sína Vöðvafeimni íþróttakvenna heyrir nú sem betur fer að mestu leyti sögunni til. Tvær af þeim sem hafa hjálpað að breyta hugarfari kvenna og karla til vöðva íþróttakvenna eru íslensku CrossFit konurnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir. 9.1.2023 08:31
Segir Denny vera hetjuna sem átti svo mikinn þátt í því að bjarga lífi Hamlin NFL-leikmaðurinn Damar Hamlin var lífgaður við á vellinum í leik Buffalo Bills og Cincinnati Bengals á mánudagskvöldið og er á batavegi. 6.1.2023 18:00