Félagsmenn Eflingar hafa leitað til VR vegna hópuppsagnar Fjölmargir sem misstu starfið í hópuppsögn hjá Eflingu hafa leitað til VR eftir aðstoð, líka félagsmenn Eflingar. Formaður VR er bjartsýnn á að verkalýðshreyfingin muni ná að þétta raðirnar fyrir næstu kjarasamningalotu þrátt fyrir allt sem hefur gengið á innan hreyfingarinnar. Tími sé kominn til að bera klæði á vopnin. 22.4.2022 12:03
Alvarlegar COVID-sýkingar hjá 80 ára og eldri þrátt fyrir þrjár sprautur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bjóða 80 ára og eldri auk íbúa hjúkrunarheimila, óháð aldri, fjórða skammtinn af bóluefni gegn COVID-19. 20.4.2022 12:50
Telur ekki nauðsynlegt að fjármálaráðherra víki Að mati Katrínar Jakobsdóttur fjármálaráðherra er ekki þörf á að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra víki vegna Íslandsbankamálsins. 19.4.2022 14:24
Fagnar því að Lilja standi með sannfæringu sinni Ásthildur Lóa Þórsdóttir, varaformaður þingflokks Flokks fólksins fagnar því að Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra standi með sannfæringu sinni og segi hug sinn opinberlega varðandi Íslandsbankamálið. Ásthildur kallar eftir afsögn fjármálaráðherra. 12.4.2022 14:39
Innviðaráðherra kærður fyrir brot á siðareglum Kæra fyrir brot á siðareglum hefur verið lögð fram til forsætisnefndar vegna ummæla sem Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lét falla á Búnaðarþingi. 11.4.2022 14:20
Forstjórinn áætlar að tjónið hlaupi á hundruðum milljóna Forstjóri Íslenska gámafélagsins áætlar að tjón vegna brunans í endurvinnslustöð á Reykjanesi um helgina hlaupi á allt að þrjú hundruð milljónum króna. Hann segir brunann mikið áfall en er á sama tíma feginn að ekkert manntjón varð. 11.4.2022 13:00
Lést áður en stóri sigurinn vannst í Hæstarétti „Þetta var rosalega erfitt fyrir hana. Hún beið lengi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands um konu sem lagði Tryggingastofnun ríkisins fyrir öllum dómstigum í deilu um skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót vegna búsetu erlendis. 7.4.2022 12:26
Keflavíkurflugvöllur verði kolefnalaus fyrir 2030 Á aðalfundi ISAVIA var Kristján Þór Júlíusson kjörin stjórnarformaður en hann gegndi embætti sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra til ársins 2021. Nýja stjórn skipa þau Hólmfríður Árnadóttir, Jón Steindór Valdimarsson, Matthías Páll Imsland og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. 6.4.2022 12:49
Segir að orðræða XD í orkumálum sé „þreytt og hálfóþolandi“ Á fundi borgarstjórnar í dag var tekist á um orkumál en Eyþór Laxdal Arnalds borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir tillögu sem miðar að því að borgarstjórn álykti um að hvetja Orkuveitu Reykjavíkur til að kanna virkjanamöguleika á starfssvæði OR. Fram undan væru orkuskiptin sem kölluðu á mun meiri raforkuframleiðslu auk þess sem bætt orkuöryggi væri brýnna í ljósi alþjóðamála. 5.4.2022 17:38
Segir ráðherra reyna að stjórna umræðunni Ragna Sigurðardóttir, forseti Ungra jafnaðarmanna, hefur ýmislegt við hegðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, að athuga. Bæði varðandi ummælin sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, en líka hvernig hann hefur kosið að bregðast við eftir að fréttir af atvikinu tóku að spyrjast út. 5.4.2022 14:39