Dæmi um burðardýr með tvö hundruð pakkningar innvortis Lögregla hefur lagt magn á helmingi meira magn kókaíns það sem af er ári, samanborið við árið 2023. Dæmi er um að burðardýr hafi haft yfir tvö hundruð pakkningar innvortis. Í sumum tilfellum er þörf á skurðaðgerð til að fjarlægja efnin. 20.4.2024 20:00
Tvær vikur í að hægt verði að „klippa húsið niður“ Niðurrif á Íslandsbankahúsinu á Kirkjusandi er í fullum gangi. Umsjónarmaður verksins áætlar að eftir um það bil tvær vikur verði hægt að fara „klippa húsið niður.“ Það mun taka nokkra mánuði. 16.4.2024 16:51
Ný staða uppi á Reykjanesskaga Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina nú hefur staðið yfir í mánuð. Í byrjun apríl fór landris að aukast og nú er um það bil jafn stór hluti kvikunnar að flæða upp á yfirborð og safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Ný staða er komin upp að sögn náttúruvásérfræðings hjá Veðurstofunni. 16.4.2024 15:33
Blöskrar að ekki hafi verið leitað til heimafólks Rekstrarstjóri hljóðkerfa- og ljósaleigu á Akureyri segir óeðlilegt að tæki og tól sem notuð voru á árshátíð Landsvirkjunar hafi verið keyrð austur frá Reykjavík í stað þess að þau væru leigð af aðilum á Norðurlandi. Hann segir Þóru Arnórsdóttir fara með rangt mál þegar hún fullyrði að ferðin skili nærsamfélaginu tugum milljóna. 16.4.2024 15:27
„Stundum þarf enga bévítans heimild“ Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid veittu verðlaun í flokknum Heimildamynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Guðni notaði tækifærið og impraði á mikilvægi þess að geta heimilda og að hafa eitthvað fyrir sér. Eliza sagði hann yfirleitt skemmtilegri en þetta á laugardagskvöldum. 14.4.2024 14:28
Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. 14.4.2024 11:15
Ísland fordæmir árásina Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. 14.4.2024 09:25
Bankasýslan, búvörulög og ríkisstjórnarsamstarfið Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. 14.4.2024 09:01
Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut alls níu Eddur þegar á verðlaunafhending á vegum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fór fram við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn, handrit, leikara og leikkonu í aðalhlutverki, auk þess að hreppa eftirsótta titilinn kvikmynd ársins. 14.4.2024 08:09
Rændu bifreið vopnaðir skotvopni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um rán á bifreið í gærkvöldi. Ökumaður bílsins sagði sér hafa verið ógnað með skotvopni. Fjórir voru handteknir í heimahúsi síðar um kvöldið, grunaðir um aðild að málinu. 14.4.2024 07:37
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent