Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um tímabundið bann við veiðum á langreyði. Ákvörðunin hefur valdið titringi innan samstarfsflokka Vinstri grænna í ríkisstjórn en ráðherra óttast ekki áhrif á stjórnarsamstarfið. 20.6.2023 18:01
„Jón Gunnarsson er karl og ég er kona“ Guðrún Hafsteinsdóttir hefur tekið við embætti dómsmálaráðherra. Að hennar mati þarf að bregðast við auknu streymi fólks hingað til lands með einhverjum hætti. Hún segir þó að það sé munur á sér og forvera sínum. 20.6.2023 00:06
Fékk síma í andlitið á miðjum tónleikum Tónlistarkonan Bebe Rexha þurfti að yfirgefa tónleika sína í New York í gærkvöldi eftir að hafa fengið síma í andlitið. Að sögn Rexha er í lagi með hana en búið er að handtaka mann sem grunaður er um að hafa kastað símanum í hana. 19.6.2023 23:09
Urðu af milljónum vegna hákarlabits Veiðimenn bátarins Sensation voru sannfærðir um að þeir væru búnir að vinna veiðikeppnina Big Rock Blue Marlin sem haldin er í bænum Morehead City í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Fiskurinn sem þeir veiddu vó rúmlega 280 kíló og reyndist hann vera sá stærsti þetta árið. Veiðimennirnir á Sensation stóðu þó ekki uppi sem sigurvegarar keppninnar þetta árið. 19.6.2023 22:52
Bestu ráðin í baráttunni við bitin Lúsmýið hefur nartað í Íslendinga í auknum mæli á sumrin síðustu ár. Húsráð við bitunum eru jafn ólík og þau eru mörg en ofnæmislæknir segir að best sé að kæla bitin, bera sterakrem á þau og taka ofnæmislyf. 19.6.2023 21:54
Myglan hafi engin áhrif á skólahaldið Mygla hefur greinst í húsnæði Háskólans á Bifröst. Byggingar skólans eru nú lokaðar vegna þessa. Rektor háskólans segir þó að myglan muni ekki hafa nein áhrif á skólahaldið þar sem námið er kennt í fjarkennslu. 19.6.2023 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í Guðrúnu Hafsteinsdóttur nýjum dómsmálaráðherra sem segir kerfið í kringum móttöku flóttafólks komið að þolmörkum. Þá segir formaður Sjálfstæðisflokksins kostnaðinn við þá sem bíða svara um hvort þeir fái hæli kominn í um tíu milljarða á ári. 19.6.2023 18:10
Kippa sér hvorki upp við dræma mætingu né beiðni leiðsögumanns Skipuleggjendur mótmæla á Austurvelli í dag vegna ástandsins í þjóðfélaginu ætla að halda ótrauðir áfram þrátt fyrir dræma mætingu. Íslenskur leiðsögumaður á flakki með erlenda ferðamenn bað mótmælendur um að lækka róminn. 1.6.2023 16:50
Samkeppni um innritun farangurs í Keflavík Nýtt íslenskt fyrirtæki að nafni BagBee tekur nú að sér innrita farangur fyrir fólk á Keflavíkurflugvelli. Þjónusta sem þessi hefur verið að ryðja sér til rúms í Evrópu en um er að ræða annað fyrirtækið hér á landi sem býður upp á hana. 1.6.2023 14:09
„Það eru allir foreldrar eins og hauslausar hænur“ Tvær mæður sem eiga börn í Kópavogi segja verkföllin hafa raskað lífi þeirra og barnanna þeirra. Umræða um verkföllin hefur ekki verið nógu mikil að þeirra mati. Þær styðja félagsfólk BSRB í verkföllunum. 1.6.2023 11:31