Gott veður fram að jólum en veturinn þungur eftir það Haustið verður gott og veturinn fram að jólum en eftir það verður hann þungur. Þetta er niðurstaða nýjasta fundar veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík. 27.8.2024 20:09
Rósa hefur átt við 1,1 milljón táa í vinnunni sinni Kúrekahattar og naut komu við sögu á sveitabæ í Grímsnes- og Grafningshreppi í gærkvöldi þegar 45 ára afmæli snyrtistofu í Reykjavík var fagnað, sem er jafnframt elsta snyrtistofa landsins. Eigandi stofunnar hefur átt við 1,1 milljón táa í öll þessi ár. 25.8.2024 20:06
Hraðminnkandi mengun frá skemmtiferðaskipum á Akureyri Hafnarvörður á Akureyri segir að skemmtiferðaskip mengi miklu minna en þau gerðu áður vegna betri vélbúnaðar og mengunarvarnabúnaðar í skipunum. Hvít slikja hefur oft legið yfir Akureyri í sumar og standa bæjarbúar í þeirri trú að um mengun sé að ræða frá skipunum en hafnarvörðurinn segir það ekki rétt. 25.8.2024 15:06
Harmonikkan er alls staðar að slá í gegn Vinsældir harmonikkunnar, sem hljóðfæris eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um ungt fólk, sem lærir á harmonikku og þá hefur eldri kynslóðin ekki síður gaman af hljóðfærinu. Fréttamaður hitti nokkra flotta hljóðfæraleikara, sem stofnuðu nýlega hljómsveit þar sem harmonikkan er í aðalhlutverki. 24.8.2024 20:07
Öllum velkomið að skoða fornminjar á Hrafnseyri Það verður mikið um að vera á Hrafnseyri við Arnarfjörð á morgun, sunnudag, því þá verður sérstakur fornminjadagur þar sem gestum og gangandi er boðið að fá kynningu á fornminjum á Hrafnseyri, auk þess að skoða Auðkúlu, en þar hefur verið grafið upp landnámsbýli. 24.8.2024 14:32
200 skemmtiferðaskip á Akureyri Um 160 skemmtiferðaskip hafa komið á Akureyri það sem af er sumri og eiga 40 skip eftir að koma. Alls verða þetta því um 254 þúsund farþegar, sem koma með skipunum og munar um minna þegar verslun og þjónusta á svæðinu er annars vegar. 22.8.2024 20:06
Ólympíufara fagnað á Selfossi Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum. 21.8.2024 20:06
97 ára og 81 árs dömur á ísrúnti á Dalvík Þær eru yfir sig ánægðar með sig, 97 ára og 81 árs vinkonurnar á Dalbæ, hjúkrunarheimili á Dalvík þegar þær fara saman á ísrúnt á sérstöku hjóli þar sem þær sitja í vagni eins og prinsessur með hattana sína og sólgleraugun á nefinu. 19.8.2024 20:05
Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Kýrin Mugga á bænum Steindyrum í Svarfaðardal er engin venjuleg kýr því hún bar þremur kálfum, allt hraustar kvígur. 18.8.2024 20:04
Hrútaþukl á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum Það verður mikið um að vera á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í dag því þar fer fram Íslandsmeistaramót í hrútadómum. Keppt verður í tveimur flokkum, vanra hrútaþuklara og óvanra þuklara. 18.8.2024 12:06