Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, eða Sigga á Grund eins og hún er alltaf kölluð var gerð að fyrsta heiðursborgara Flóahrepps í 80 ára afmælishófi hennar í Vatnsholti í Flóa í gærkvöldi. 31.5.2024 09:37
Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Tvíburafolöld komu í heiminn á bænum Melabergi á Stafnesi í Suðurnesjabæ í gærkvöldi. Það kom jörp hryssa og brúnn hestur og hafa þau fengið nafnið Hula og Háski. Systkinin komu vel undan nóttinni og voru farin að hlaupa saman í morgun. 28.5.2024 16:04
78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum 78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og annar frá 1933 vekja nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu í Skógum undir Eyjafjöllum en rafeindavirki tók að sér að gera þá upp og færa safninu. 26.5.2024 20:05
Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Mikil þörf er á byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vík í Mýrdal og því hefur sveitarstjóra verið falið að vinna að málinu með heilbrigðisráðuneytinu. Lagt er til að fasteignafélögum verið gefið tækifæri til að standa að byggingu og rekstri húsnæðisins. 26.5.2024 15:30
Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Hjón sem lentu í rútuslysi, ásamt 25 öðrum, í Rangárvallasýslu í gær segja ótrúlegt að ekki hafi farið verr. Þrír úr hópnum köstuðust út úr rútunni þegar hún valt en allir eru á batavegi. Þau segja þakklæti til viðbragðsaðila efst í huga. 26.5.2024 13:59
Brauðtertuveisla í brauðtertusamkeppni á Selfossi Átta manns skiluðu inn nokkrum brauðtertum og ostakökum í morgun í brauðtertu og ostakökusamkeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffi á Selfossi. Brauðtertan, sem vinnur fer í sölu í Konungskaffi í nýja miðbænum í sumar og ostkakan á Kaffi Krús við Austurveg. 26.5.2024 13:05
Afmælisstemming hjá Eldstó á Hvolsvelli Það verður blásið til veislu Hvolsvelli á morgun, sunnudag en þá fagnar eina kaffihús staðarins 20 ára afmæli og býður öllum, sem vilja upp á köku og kaffi í tilefni dagsins frá 15:00 til 17:00. Póstur og sími voru áður í húsnæðinu. 25.5.2024 14:32
Mættu ríðandi í skólann Skólastarfið í Flóaskóla í Flóahreppi var brotið upp á skemmtilegan hátt í dag því nemendur og starfsmenn komu ríðandi í skólann á hestum sínum. 22.5.2024 20:31
Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Tveir nýir prestar og tveir nýir djáknar hafa verið vígðir til embættis í fjórum mismunandi kirkjum. Athöfnin fór fram í Skálholtsdómkirkju þar sem vígslubiskupinn á staðnum brá sér í hlutverk biskups Íslands til að sjá um vígsluna að viðstöddum tíu prestum, sem voru vígsluvottar, auk þriggja djákna. 21.5.2024 20:15
80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Þegar mest var voru um 60 þúsund hermenn á Íslandi árin 1942 til 1945 og þar af voru um 28 þúsund hermenn í Hvalfirði í herskipum, sem lágu þar. Um þetta er fjallað á sýningu í Hernámssetrinu í Hvalfirði, sem hefur notið mikillar vinsældar hjá “Gaua litla” eins og hann er alltaf kallaður. 20.5.2024 20:03