Ragnar Þór fundar með sínu baklandi í dag Breiðfylking ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda klukkan níu. Fram kom í fréttum í gær að náðst hefði samkomulag á fundi þeirra í gær um forsenduákvæði um þróun verðbólgu. 23.2.2024 08:46
Vopnavörðurinn sögð hafa verið óvandvirk Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed er sögð hafa verið óvandvirk á setti kvikmyndarinnar Rust. Hún sá um að hlaða byssu fyrir leikarann Alec Baldwin við tökur sem svo hleypti af henni með þeim afleiðingum að kvikmyndagerðarkonan Halyna Hutchins lést þann 21. október 2021. Bæði eru þau ákærð fyrir manndráp af gáleysi. 23.2.2024 08:14
Framlengir fjöldaflóttavernd fyrir fjögur þúsund Úkraínumenn Dómsmálaráðherra framlengir gildistíma 44. greinar laga um útlendinga um sameiginlega vernd Úkraínumanna vegna fjöldaflótta þeirra í kjölfar innrásar í Úkraínu. Tilkynnt verður um það í stjórnartíðindum í dag. Gildistími nýrrar framlengingar er til 2. mars á næsta ári. 23.2.2024 06:59
Samskipti við ráðuneytið um framtíð skólastarfs mikil vonbrigði Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti í dag tillögu fjölskylduráðs sveitarfélagsins um að auglýsa eftir þremur stöðugildum fagmenntaðs starfsfólks til að sinna annars vegar skólastjórn og hins vegar kennslu. Náist ekki að fylla þessar stöður verði grunnskólanum á Raufarhöfn lokað. 22.2.2024 21:00
Enn fundað í Karphúsinu um forsenduákvæðið Breiðfylking stéttarfélaga innan ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda hjá ríkissáttasemjara. Fundur hófst klukkan níu í morgun og stendur enn að sögn Elísabetar Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjara. 22.2.2024 15:42
Hiti rís upp frá nýju hrauni og myndar bólstra í lofti Ef litið er frá höfuðborgarsvæðinu í átt að Reykjanesinu má í dag sjá röð skúraskýja frá nýju hrauni við Sundhnúkagíga og út á sjó. 22.2.2024 13:15
Engar nýjar vísbendingar í leit að Jóni Þresti Lögreglan á Írlandi hefur engar nýjar upplýsingar í rannsókn sinni á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Það staðfestir lögreglan í tölvupósti til fréttastofu. 21.2.2024 15:43
Missti aldrei stjórn á aðstæðum í baðstofunni Björn Leifsson, eigandi World Class, segir ekki rétt að hann hafi ekki ráðið við aðstæður sem upp komu í baðstofu Lauga Spa á laugardaginn. Greint var frá því á Vísi á mánudag að lögreglan hefði haft afskipti af góðkunningjum lögreglunnar í baðstofunni. Sérsveitarmenn hefðu mætt á svæðið. 21.2.2024 14:49
Styttingin hafi haft verri áhrif á drengi en stúlkur Samkvæmt rannsókn við Háskóla Íslands hefur stytting framhaldsskólans haft slæm áhrif á einkunnir ungmenna í háskóla, fjölda eininga teknum í háskóla og brotthvarf úr háskóla. Líklegra er að breytingin hafi haft slæm áhrif á drengi en stúlkur. 21.2.2024 08:50
Vill flýta endurskoðun laga um leigubílaakstur Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill flýta endurskoðun laga um leigubifreiðaakstur. Í lögunum er heimild til endurskoðunar á næsta ári en hann telur best að henni sé flýtt. Vilji leigubílstjóra sem hann hafi talað við sé að þessu sé flýtt en að auk þess sé það áríðandi í ljósi nýlegra frétta af kynferðisbroti leigubílstjóra. 21.2.2024 08:24