Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu. 13.4.2026 22:00
Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun. 13.4.2026 14:24
Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10.4.2026 06:56
Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Ný landsstjórn Færeyja hyggst hefja viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þórshöfn í dag þar sem oddvitar kynntu samstarfssáttmálann. 9.4.2026 21:49
Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“. 9.4.2026 11:51
Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. 8.4.2026 22:00
Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja. 8.4.2026 19:45
Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af. 8.4.2026 13:39
Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis. 7.4.2026 21:21
Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Ein minnsta starfsstöð flugfélagsins Air Atlanta er á Heathrow-flugvelli í London, þar sem þjálfun flugmanna fer fram. Þar er félagið með sinn eigin Boeing 747-flughermi. 6.4.2026 15:00