Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin kyrrðarstund var haldin í Lindarkirkju í dag þar sem gestir heiðruðu minningu Bryndísar Klöru og veittu sorg sinni útrás. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 7.9.2024 18:03
Tvöfalda viðbúnað á Ljósanótt í kvöld Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á Ljósanótt tónlistar- og bæjarhátíð í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Búist er við talsvert fleiri gestum á hátíðinni í kvöld og viðbúnaður lögreglu verður meira en tvöfaldaður miðað við það sem var í gær. 7.9.2024 12:37
Hraun gæti náð Reykjanesbraut og umdeild auglýsing Play Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 7.9.2024 11:57
Deilur harðna hjá ríkissaksóknara og glæpasögukviss í beinni Ríkissaksóknari ítrekar að henni hafi borið að áminna vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar hegðunar fyrir tveimur árum og senda mál hans til dómsmálaráðuneytisins á þessu ári þegar hann hélt uppteknum hætti. Háttsemi hans hafi verið ósæmileg og varpað rýrð á embættið. 5.9.2024 18:03
Örlagaríkur tölvupóstur opnaður á Facetime við mömmu og pabba Erna Kristín og Hrefna Kristrún Jónasdætur eru 24 ára eineggja tvíburasystur sem náð hafa lygilegum árangri í ballettheiminum í Bretlandi. Þær segja hápunkt ferilsins hingað til tvímælalaust hafa verið þegar þær fengu samning við Royal national ballet, einn virtasta ballettflokk Bretlands. 5.9.2024 14:01
Samfélagið í sjokki en lífið gengur samt sinn vanagang Móðir og dætur hennar þrjár eru á meðal sjö sem létust í loftárás Rússa á borgina Lviv í vestanverðri Úkraínu. Íslendingur í borginni, sem var í miklu návígi við mestu sprengingarnar, segir lífið hafa gengið sinn vanagang í dag, þrátt fyrir að samfélagið sé í sjokki. 4.9.2024 20:01
Málmleitartæki á böllum og Sjálfstæðiskonur bregðast við umdeildum ummælum Skipuleggjendur Ljósanætur og Októberfest ætla að auka viðbúnað í kringum hátíðarnar vegna alvarlegra atvika í samfélaginu undanfarið. Þá hefur verið ákveðið að nota málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu. Forseti Stúdentaráðs segir mikilvægt að fólk upplifi sig öruggt. 4.9.2024 18:01
Eitt versta sumar aldarinnar Sumarið 2024 var óvenju kalt og blautt, samkvæmt gögnum Veðurstofunnar. Sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum gefur sumrinu slaka einkunn - það hafi verið með þeim verri á þessari öld. Þá fara fyrstu dagar septembermánaðar ekki heldur mjúkum höndum um íbúa víða á landinu. 4.9.2024 15:26
Fjöldamótmæli gegn Netanjahú vegna gíslanna Mótmælaalda hefur gengið yfir Ísrael eftir að sex gíslar í haldi Hamas fundust látnir. Reiðin beinist einkum að forsætisráðherra Ísraels og boðað hefur verið til allsherjarverkfalls á morgun. 1.9.2024 20:33
Nýr biskup tekur við þjóðkirkjunni Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til biskups Íslands í Hallgrímskirkju í dag. Fjöldi fólks tók þátt í athöfninni, þar á meðal íslenskir prestar og biskupar, auk biskupa frá Norðurlöndum, Bretlandi, Wales og Palestínu. 1.9.2024 20:02