
Líkja sambandi við njósnara við nauðgun
Sex katalónskar konur hafa stefnt lögreglumanni, spænska ríkislögreglustjóranum og innanríkisráðherra fyrir kynferðisofbeldi. Lögreglumaðurinn starfaði sem njósnari innan anarkistasenunnar í Barcelona og átti í samböndum við átta konur.