

Fréttamaður
Keldan hefur sett fjórtán ára gamalt barn á lista yfir í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla á grunni laga um peningaþvott og fjármögnun hryðjuverka. Varaþingmaður og faðir barnsins segir málið svívirðu.
Glannaskapur við gosstöðvarnar ógildir ekki líftryggingar fólks en möguleiki er á því að slysabætur skerðist vegna vítaverðs gáleysis. Borið hefur á því að fólk fylgi ekki fyrirmælum lögreglu og setji sig í hættu.
Nuddarinn Ioseb Gogiashvili hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir kynferðisbrot gegn konu á heimili hennar. Ioseb flúði land en var handtekinn og framseldur til Íslands.
Maður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi. Brotin voru framin gegn fyrrverandi eiginkonu hans í sumarbústað.
Níu einstaklingar sóttu um starf forstöðumanns nýrrar ríkisstofnunar sem mun bera heitið Land og skógur. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfisnefndar.
Kanadíski landstjórinn Mary Simon eyddi rúmum sjö milljónum í limmósínufyrirtæki í fjögurra daga ferð á Íslandi. Í heildina kostaði ferðin þrjátíu milljónir króna fyrir níu manns.
Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 standa enn við Ægisgarð þrátt fyrir vilja Reykjavíkurborgar um að þeir verði fluttir þaðan burt. Nýjustu vendingar í hvalveiðimálum hafa ekki verið ræddar í borgarstjórn.
Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri lögreglunnar, segir margvíslegar ástæður fyrir því að gosstöðvunum hafi verið lokað í morgun. Sumir reyni að stelast til að komast að þeim, fram hjá lögreglunni.
Íbúum Evrópusambandslanda fjölgaði um 2,7 milljónir árið 2022 sem er mesta hækkun síðan árið 1965. Tvö ár þar á undan var fólksfækkun.
Vellirnir í Hafnarfirði standa á yngsta hrauninu á höfuðborgarsvæðinu. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir því skynsamlegra að byggja til austurs frá Völlunum en til suðurs.