Fólk stungið til bana á borgarhátíð í Þýskalandi Þrír eru látnir og fjórir alvarlega særðir eftir að maður stakk fólk handahófskennt á borgarhátíð í Solingen í Þýskalandi í kvöld. Árásarmaðurinn er óþekktur og gengur enn laus. 23.8.2024 22:02
Sjá ekki fyrir endann á eldsumbrotum á Reykjanesskaga Ekki sér enn fyrir endann á þeirri eldvirkni sem hófst á Reykjanesskaga fyrir þremur árum, að sögn jarðeðlisfræðings. Hann útilokar þó að búast megi lengi áfram við stöðugum eldgosum á nokkurra mánaða fresti. 23.8.2024 21:54
Tvö hjólhýsi splundruðust í vindhviðum á Lyngdalsheiði Engin slys urðu á fólki þegar sendiferðabíll valt og endaði á þakinu og tvö hjólhýsi splundruðust í sterkum vindhviðum á Lyngdalsheiði síðdegis. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir ekkert ferðaveður með ferðavagna á svæðinu. 23.8.2024 19:58
Kennedy hættir og lýsir yfir stuðningi við Trump Robert F. Kennedy yngri dró framboð sitt til forseta Bandaríkjanna til baka og lýsti yfir stuðningi við Donald Trump í ræðu í dag. Hann sagðist engu að síður þess viss að hann hefði unnið sigur í „heiðarlegu kerfi“. 23.8.2024 19:17
Átta látnir eftir gíslatöku í rússnesku fangelsi Leyniskyttur skutu fjóra fanga til bana sem tóku fangelsisstarfsmenn til fanga og stungu fjóra til bana í Vogograd-héraði í Rússlandi í dag. Fangarnir lýstu sjálfum sér sem vígamönnum Ríkis íslams í myndbandi sem þeir birtu á netinu. 23.8.2024 19:00
Óvissustig vegna rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna mikillar rigningar og aukinnar hættu á skriðuföllum á Tröllaskaga. Hluta Siglufjarðarvegur hefur verið lokað vegna grjóthruns. 23.8.2024 18:15
Ný Covid-bóluefni fá grænt ljós Bandarísk lyfjastofnunin veitti í gær leyfi fyrir tveimur nýjum bóluefnum gegn Covid-19. Heilbrigðisyfirvöld þar mæla með því að allir yfir sex mánaða aldri fá nýju bóluefnin sem eru hönnuð gegn nýrri afbrigði veirunnar. 23.8.2024 17:38
Ók fram af kanti og lenti ofan á þaki á öðrum bíl Engan sakaði þegar ökumaður ók fram af háum kanti í bílastæði þannig að bíll hans hafnaði ofan á þakinu á annarri bifreið sem var lagt fyrir neðan. Töluverðar skemmdir urðu aftur á móti báðum bílum. 23.8.2024 17:23
Glóandi hraun í náttmyrkrinu Þrátt fyrir hvassviðrið á Reykjanesi náði Björn Steinbekk, myndatökumaður, glæsilegum myndum úr lofti af nýju hrauninu sem rennur nú á Sundhnúksgígaröðinni. Þar sést glóaandi hraunið flæða í myrkrinu. 23.8.2024 01:01
Grindavík ekki í hættu ef fer sem horfir Ekkert hraunrennsli er í átt að Grindavík og bærinn er ekki í hættu ef gosið heldur áfram með þessum hætti, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings, sem flaug yfir gosstöðvarnar í kvöld. Hann áætlar að hraun þeki yfir fimm ferkílómetra. 22.8.2024 23:50