Árið hófst á fíngerðri svifryksmengun Svifryksmengun lá yfir höfuðborgarsvæðinu síðustu klukkustundir ársins 2022 og fyrstu klukkustundir ársins 2023 en veðuraðstæður vógu upp á móti henni. Áberandi hátt hlutfall fínasta og hættulegasta svifryksins mældist á gamlárskvöld og nýársnótt. 2.1.2023 15:34
Aldrei fleiri þyrluútköll en í fyrra Metfjöldi þyrluútkalla var hjá Landhelgisgæslunni í fyrra en þá sinnti flugdeild hennar 299 útköllum. Meirihluti þeirra var vegna sjúkraflutninga og þriðjungur var á sjó. 2.1.2023 14:36
Þurfa að bíða fram á næsta dag eftir pening fyrir flöskur og dósir Viðskiptavinir Endurvinnslunnar geta ekki lengur fengið greitt samstundis fyrir flöskur og dósir með greiðslukorti. Þess í stað þurfa þeir að sækja sér snjallforrit eða millifæra inn á reikning. Fyrst um sinn verður skilagjaldið ekki millifært fyrr en næsta virka dag á eftir. 2.1.2023 14:14
Trump hafði tekjur í fjölda landa á meðan hann var forseti Skattskýrslur Donalds Trump sýna að hann hafði tekjur í á öðrum tug landa á meðan hann var forseti Bandaríkjanna og að hann átti bankareikning í Kína. Trump greiddi enga alríkisskatta síðasta ár sitt sem forseti. 2.1.2023 12:20
Trommari Modest Mouse látinn eftir glímu við krabbamein Jeremiah Green, trommuleikari bandarísku indírokksveitarinnar Modest Mouse, er látinn, aðeins 45 ára að aldri. Aðeins liðu örfáir dagar á milli þess að sveitin greindi frá því að Green glímdi við krabbamein þar til hann lést. 2.1.2023 09:23
Réðust á fangelsi og hjápuðu tugum að sleppa Tugir fanga komust undan og fjórtán manns féllu þegar vopnaðir menn í brynvörðum bílum hófu skothríð á fangelsi í norðanverðu Mexíkó á nýársdag. Árásarmennirnir eru taldir félagar í eiturlyfjagengi. 2.1.2023 08:43
Byrjuðu að reyna að kæla loftslagið án þess að spyrja kóng né prest Bandarískt sprotafyrirtæki heldur því fram að það hafi þegar sent brennisteinsdíoxíð hátt upp í lofthjúpinn yfir Mexíkó til þess að kæla yfirborð jarðar. Sérfræðingar gagnrýna glannaskap fyrirtækisins með vísindi sem eru skammt á veg komin og sem gætu haft ófyrirséðar afleiðingar. 31.12.2022 08:00
Seinka öllu flugi í Keflavík á morgun Öllum flugferðum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verður seinkað á morgun, gamlársdag, vegna veðurs. Útlit er fyrir erfið akstursskilyrði á Reykjanesbraut og í Reykjanesbæ í fyrramálið. 30.12.2022 14:18
Hlakkar í Thunberg yfir handtöku Tate Ungi umhverfissinninn Greta Thunberg hæddist að fréttum af því að Andrew Tate, samfélagsmiðlastjarna sem er þekkt fyrir kvenhatur, hafi verið tekinn höndum í Rúmeníu. Fátt bendir þó til að Twitter-skærur Tate og Thunberg hafi átt þátt í að lögregla hafði hendur í hári hans. 30.12.2022 09:52
Þungir dómar yfir öfgamönnum sem ætluðu að ræna ríkisstjóra Forsprakki hóps hægriöfgamanna sem ætlaði að ræna ríkisstjóra Michigan í Bandaríkjunum var dæmdur í rúmlega nítján ára fangelsi í gær. Dómurinn er sá þyngsti í málinu en annar leiðtoga hópsins hlaut sextán ára dóm á þriðjudag. 29.12.2022 16:03