Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið. 22.7.2026 09:09
Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa „Já, ég hef fundið fyrir depurð. Fólk skilur þetta ekki fyrr en það lendir í þessari stöðu. Það gerir enginn ráð fyrir því að missa heilsuna um miðjan aldur,“ segir Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vogum. 21.7.2026 10:20
Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Speakness er íslenskt athugasemdakerfi sem hefur verið í prófun og er nú að færast á næsta stig. Einn forkólfa fyrirtækisins Veriate ehf. segir hugmyndina með vörunni þá að styrkja fjölmiðla í sessi því ef þeir holast að innan meira en orðið er verður lýðræðið næst í röðinni. 21.7.2026 07:01
Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast. 17.7.2026 13:12
Halldór Árni Sveinsson er látinn Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, er látinn. Halldór Árni var fæddur 22. febrúar 1955 en hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hafnarfirði. 17.7.2026 09:11
Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Krzysztof Jerzy og kona hans Magdalena Bartczak frá Póllandi eru að missa íbúð sína í þriðja skipti á tveimur árum. Krzysztof lýsir húsnæðismarkaði í Reykjavík sem rússíbana. 16.7.2026 07:03
Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar. 15.7.2026 14:34
Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Sigmar Vilhjálmsson, þáttastjórnandi í Bítinu á Bylgjunni, braut odd af oflæti sínu í morgun og bað sjúkraliða afsökunar á gáleysislegum orðum sínum þess efnis að þar færi ófaglærð stétt. 14.7.2026 11:23
„Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hefur fylgst grannt með gangi mála í laxveiðinni og hefur hann rannsakað Elliðaárnar um hríð. Þar fylgist hann meðal annars með laxateljurum og segir árnar „bakkafullar af göngulaxi“. 13.7.2026 11:36
Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Jóhann Helgason tónlistarmaður er einn af þeim stóru; ferill hans er magnaður og víst að perlur eftir hann eiga eftir að lifa um ókomin ár. Jóhann var á mótunarárum þegar Bítlarnir komu fram snemma á 7. áratugnum og heimsbyggðin hefur ekki orðið söm. Jóhann greindist nýverið með krabbamein. Hann segist ekki óttast dauðann en hann væri alveg til í meiri tíma með fólkinu sínu. 11.7.2026 07:03