Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sérdeilis ólíðandi að sjómenn þurfi að greiða afnotagjöld af RÚV ohf., en séu hins vegar sviptir möguleikum á að ná sjónvarps og útvarpssendingum. 3.7.2024 09:43
Hjálmar segist ekki kærður því það sé ekkert að kæra Hjálmar Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri BÍ segir stjórnina senda sér kaldar kveðjur við starfslokin. En fjallið hafi nú tekið joðsótt og það hafi fæðst mús. 2.7.2024 16:11
Segir Sigmund og Bergþór bera sína ábyrgð á Mannréttindastofnun Íslands Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, skynjar falskan tón í óbilgjarnri gagnrýni þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og Bergþórs Ólasonar þingmanns en þeir hafa fundið Mannréttindastofnun Íslands, sem samþykkt var við þinglok, flest til foráttu. 2.7.2024 12:01
Tjónvaldurinn tók varla eftir því að hafa rústað bílnum Einar Skúlason gönguhrólfur varð fyrir því um daginn að ekið var utan í bílinn hans á dögunum. Önnur hliðin öll rispuð, ekki vitað hver hafði verið að verki og Einar sá fram á meiriháttar fjárútlát við að láta gera við bílinn. 1.7.2024 16:42
Sjálfstæðisflokkur og Píratar að miklu leyti til eins Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata gefur ekki mikið fyrir pólítíska greiningu Stefáns Einars Stefánssonar víninnflytjanda og blaðamanns Morgunblaðsins í nýlegum pistili á Facebook. 1.7.2024 13:13
Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum. 1.7.2024 10:17
Kristján Loftsson skilur ekkert hvað hvalveiðar koma alls kyns samtökum við Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, kallaði eftir öllum gögnum sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hafði til grundvallar ákvörðun sinni sem var að leyfa hvalveiðar. Í öllum þeim bunka leyndist upplýsandi bréf frá Kristjáni Loftssyni hjá Hval ehf. 29.6.2024 07:14
Rannveig hættir í Seðlabankanum Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hefur óskað eftir því við forsætisráðherra að láta af störfum í lok ársins þegar fimm ára skipunartíma hennar lýkur. 28.6.2024 16:12
Dráttarbáturinn Hrafn Jökulsson standsettur Svo virðist sem Hafn Jökulsson sé hvergi nærri hættur að láta til sín taka við að hreinsa fjörur landsins – þó hann sé nú allur. Það er dráttarbáturinn Hrafn Jökulsson hins vegar ekki, hann er nú í slipp og verið að gera hann kláran í verkið. 28.6.2024 14:34
Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ritstjóri fylgdist með kappræðunum vestan hafs sem fram fóru í nótt og honum er brugðið – vægast sagt. 28.6.2024 11:29