Enginn í bann en ummæli Björgvins Páls fara fyrir aganefnd Þeir þrír leikmenn sem fengu rautt spjald í leikjunum í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í gær sluppu allir við bann. Ummæli Björgvins Páls Gústavssonar, markvarðar Vals, eftir leikinn gegn Fram fara hins vegar fyrir aganefnd. 22.4.2022 16:46
Sjáðu frábært upphitunarmyndband FH-inga Öllum sem fylgja handknattleiksdeild FH á samfélagsmiðlum má ljóst vera að Hafnfirðingar eru spenntir fyrir rimmunni gegn Selfossi í átta liða úrslitum Olís-deildar karla. 22.4.2022 16:12
Sveindís byrjar á Nývangi Sveindís Jane Jónsdóttir er í byrjunarliði Wolfsburg sem mætir Barcelona á Nývangi í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. 22.4.2022 15:33
Gæti spilað fyrir landsliðið í fyrsta sinn í úrslitaleik um sæti á EM Margrét Einarsdóttir, markvörður Hauka, fór með íslenska kvennalandsliðinu út til Zrenjanin þar sem það mætir Serbíu í úrslitaleik um sæti á EM í nóvember. 22.4.2022 15:16
Sigursteinn framlengir við FH fyrir fyrsta leik í úrslitakeppninni Sigursteinn Arndal hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild FH og mun því stýra karlaliði félagsins til 2025. 22.4.2022 14:30
Pogba líklega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir United Franski miðjumaðurinn Paul Pogba hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United. Hann meiddist í leiknum gegn Liverpool á þriðjudaginn og spilar væntanlega ekki meira á þessu tímabili. 22.4.2022 13:45
Hlakkar til að spila á troðfullum Nývangi: „Þetta er klikkað“ Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, getur ekki beðið eftir því að spila á hinum sögufræga Nývangi. Sveindís og stöllur hennar í Wolfsburg mæta Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag. 22.4.2022 11:31
Besta spá kvenna 2022: Erfitt sumar í Vesturbænum og Keflavík Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að KR og Keflavík endi í 10. og 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 22.4.2022 10:00
Björgvin gaf í skyn að leikmenn Fram skytu viljandi í höfuðið á sér Þrátt fyrir tíu marka sigur á Fram, 34-24, í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í gær var Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, ekki sáttur í leikslok. Honum fannst leikmenn Fram gera í því að skjóta boltanum nálægt höfði sínu. 22.4.2022 09:31
Strákarnir í Seinni bylgjunni hita upp fyrir úrslitakeppnina og gera upp tímabilið Úrslitakeppni Olís-deildar karla hefst á morgun og að því tilefni verður Seinni bylgjan með veglegan upphitunarþátt í dag. 20.4.2022 13:16