Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma. 17.11.2020 23:27
Missti föður sinn úr Alzheimer og blæs til stórsóknar gegn sjúkdómnum Athafnamaðurinn og mannvinurinn Bill Gates missti föður sinn úr Alzheimer fyrir tveimur mánuðum og segist ekki óska neinum þeirrar lífsreynslu. 17.11.2020 22:47
Fara í skimun til að geta djammað um helgina Það er ekki góð hugmynd að fara í Covid-19 skimun á fimmtudegi og halda að það sé í lagi að djamma um helgina ef niðurstaðan er neikvæð. Þetta segir Barbara Ferrer, yfirlæknir Los Angeles-sýslu. 17.11.2020 22:45
Skólahald fellur niður vegna smits á Austurlandi Skólahald fellur niður í tveimur grunnskólum á Egilsstöðum á morgun, eftir að smit greindist á Austurlandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn lögreglu á Austurlandi. 17.11.2020 21:59
Er sagður hafa krafið Trump um 2,7 milljónir á dag Rudolph W. Giuliani, sem hefur leitt tilraunir Donald Trump Bandaríkjaforseta til að fá úrslitum forsetakosninganna snúið, fór fram á að fá greitt fyrir sem samsvarar 2,7 milljónum króna á dag. 17.11.2020 21:44
Börnum rænt og þau seld fyrir 55 þúsund krónur Stjórnvöld í Kenía hafa fyrirskipað rannsókn á þjófnaði og sölu barna í kjölfar uppljóstrana BBC. Í umfjöllun BBC kom m.a. fram að börnum væri stolið eftir pöntun á opinberum spítala í Naíróbí. 17.11.2020 19:59
Hleypa Corbyn aftur í flokkinn Jeremy Corbyn, fyrrum formanni Verkamannaflokksins, hefur verið hleypt aftur í flokkinn. Corbyn var vikið úr Verkamannaflokknum fyrir 19 dögum vegna viðbragða hans við skýrslu um gyðingaandúð innan flokksins. 17.11.2020 19:12
Vilja jafna möguleika þeirra sem lokið hafa iðn- og starfsnámi Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um háskóla bíður nú umsagna í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið frumvarpsins er að jafna möguleika framhaldsskólanema sem hafa lokið prófi af svokölluðu þriðja hæfnisþrepi í framhaldsskóla til háskólanáms. 17.11.2020 18:21
Unnið að skimun minka en ekkert smit greinst enn sem komið er Unnið er að því að skima alla minka á minkabúum landsins en enn hefur ekkert smit greinst. Þetta kemur fram í stöðusýrslu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. 17.11.2020 17:48
Hlaupari sektaður þrátt fyrir dauðsfall vinar Ónefndur hlaupari á yfir höfði sér 65 þúsund króna sekt fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur eftir að hann tilkynnti að vinur hans hefði fallið til bana í ítölsku Ölpunum. 17.11.2020 17:35