Jólatréð við Rockefeller Center þykir táknmynd ársins 2020 Nokkrar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum vestanhafs um hið margfræga jólatré við Rockefeller Center í New York. Tréð var sett upp 14. nóvember sl. og fékk umsvifalaust einkunnina: Jólatré ársins 2020. 18.11.2020 21:03
Harmar „dapurlegar athugasemdir“ vegna smits bílstjóra „Aðgát skal höfð í nærveru sálar,“ brýnir Hlynur Bragason, eigandi Sæta hópferða, fyrir íbúum Fljótsdalshéraðs en í færslu í Facebook-síðunni Íbúar Fljótsdalshéraðs talar hann um dapurlegar athugasemdir, sem virðast hafa borist fyrirtækinu eða bílstjóra þess, sem greinst hefur með Covid-19. 18.11.2020 20:16
Áunnið ónæmi gæti varað ár eða áratugi Rannsóknarniðurstöður vísindamanna við La Jolla Institute of Immunology í Bandaríkjunum vekja vonir um að áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 geti varað í mörg ár eða jafnvel áratugi. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókn stofnunarinnar bjuggu enn að nógu góðu ónæmissvari átta mánuðum eftir smit til að vinna á veirunni og koma í veg fyrir veikindi. 18.11.2020 19:29
Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma. 17.11.2020 23:27
Missti föður sinn úr Alzheimer og blæs til stórsóknar gegn sjúkdómnum Athafnamaðurinn og mannvinurinn Bill Gates missti föður sinn úr Alzheimer fyrir tveimur mánuðum og segist ekki óska neinum þeirrar lífsreynslu. 17.11.2020 22:47
Fara í skimun til að geta djammað um helgina Það er ekki góð hugmynd að fara í Covid-19 skimun á fimmtudegi og halda að það sé í lagi að djamma um helgina ef niðurstaðan er neikvæð. Þetta segir Barbara Ferrer, yfirlæknir Los Angeles-sýslu. 17.11.2020 22:45
Skólahald fellur niður vegna smits á Austurlandi Skólahald fellur niður í tveimur grunnskólum á Egilsstöðum á morgun, eftir að smit greindist á Austurlandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn lögreglu á Austurlandi. 17.11.2020 21:59
Er sagður hafa krafið Trump um 2,7 milljónir á dag Rudolph W. Giuliani, sem hefur leitt tilraunir Donald Trump Bandaríkjaforseta til að fá úrslitum forsetakosninganna snúið, fór fram á að fá greitt fyrir sem samsvarar 2,7 milljónum króna á dag. 17.11.2020 21:44
Börnum rænt og þau seld fyrir 55 þúsund krónur Stjórnvöld í Kenía hafa fyrirskipað rannsókn á þjófnaði og sölu barna í kjölfar uppljóstrana BBC. Í umfjöllun BBC kom m.a. fram að börnum væri stolið eftir pöntun á opinberum spítala í Naíróbí. 17.11.2020 19:59
Hleypa Corbyn aftur í flokkinn Jeremy Corbyn, fyrrum formanni Verkamannaflokksins, hefur verið hleypt aftur í flokkinn. Corbyn var vikið úr Verkamannaflokknum fyrir 19 dögum vegna viðbragða hans við skýrslu um gyðingaandúð innan flokksins. 17.11.2020 19:12
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti