Elton John reiður fyrir hönd tónlistarfólks og vill stjórnvöld aftur að borðinu Tónlistarmaðurinn Elton John er síður en svo ánægður með bresk stjórnvöld og kallar eftir því að þau freisti þess að setjast aftur að samningaborðinu með Evrópusambandinu. 7.2.2021 23:23
Aðkoma að sjónvarpsþáttum um leitina að Wall bjargaði foreldrum hennar Foreldrar blaðamannsins Kim Wall segja að aðkoma þeirra að sjónvarpsþáttaröð um morðið á dóttur þeirra hafi verið það eina sem kom í veg fyrir að þau féllu ofan í djúpan og dimman pytt. 7.2.2021 22:09
Páfi skipar konu sem annan varaformann biskuparáðsins Kona mun nú í fyrsta sinn sitja í embætti varaformanns biskuparáðs kaþólsku kirkjunnar, sem er páfa til ráðgjafar. Páfagarður tilkynnti í gær að Francis páfi hefði skipað Nathalie Becquart, franska nunnu, í embættið. 7.2.2021 21:18
Drottningin fékk lögum breytt til að sveipa auðæfi sín leyndarhjúp Elísabetu drottningu tókst að fá stjórnvöld til að gera breytingar á lagafrumvarpi til að koma í veg fyrir að almenningur fengi upplýsingar um persónuleg auðæfi hennar. Þetta kemur fram í minnisblöðum sem blaðamenn Guardian fundu í breska þjóðskjalasafninu. 7.2.2021 19:47
Landsréttur neitar að viðurkenna faðerni þrátt fyrir jákvæða erfðafræðirannsókn Áhugaverður dómur féll í Landsrétti á dögunum þar sem niðurstaðan var sú að ekki væri mögulegt að fallast á kröfu systkina um að faðir þeirra hefði verið sonur ákveðins manns, jafnvel þótt mannerfðafræðileg rannsókn hefði leitt í ljós að 99 prósent líkur væru á að hann væri það sannarlega. 7.2.2021 19:00
Sajid Sadpara er vonlítill um að faðir hans og samferðamenn finnist á lífi Sajid Sadpara, sem var með John Snorra á K2 en þurfti að snúa við vegna bilaðs súrefniskútar, segist vonlítill um að Ali faðir hans og samferðamenn finnist á lífi. 7.2.2021 17:55
Vísindasiðanefnd hefur ekki borist umsókn: Um hvernig rannsókn verður að ræða? Vísindasiðanefnd hefur ekki borist umsókn vegna mögulegrar rannsóknar Pfizer á bólusetningu íslensku þjóðarinnar sem nú er í skoðun. Ef erindi berst þarf hins vegar ekki að taka svo langan tíma að afgreiða það, segir formaður nefndarinnar. 7.2.2021 17:05
Fundu stafla af reiðufé niðurgrafna á landareign viðskiptafélaga Hatuikulipi Samkvæmt fjölmiðlinum The Namibian er talið að sumir ákærðu í Samherjamálinu svokallaða hafi tekið milljónir namibíudala af bankareikningum áður en þeir voru handteknir í nóvember 2019 og komið þeim í hendur samverkamanna. 6.2.2021 09:16
Framkvæmdastjóri Icelandic Provisions segir staðhæfingar í skyr-málinu rangar Vísi hafa borist viðbrögð vegna fréttar um hópmálssókn gegn Icelandic Provisions vegna umbúða og markaðssetningar fyrirtækisins á skyri í Bandaríkjunum. 5.2.2021 17:22
„Plís ekki opna þessa kassa aftur“ Spilakassar eru tímaskekkja, segir Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn, en á miðnætti opnuðu samtökin vefsíðuna lokum.is þar sem hvatt er til þess að spilasölum með spilakössum verði lokað til frambúðar. 5.2.2021 15:34