Áætlun til að efla íslenskan landbúnað: Möguleikar bænda til að framleiða og selja beint frá býli auknir Í mars verður kynnt til sögunnar átak til að ýta undir möguleika bænda til að framleiða og selja afurðir beint frá býli. Markmiðið er að gefa bændum kost á að styrkja verðmætasköpun og afkomu fyrir næstu sláturtíð. 17.2.2021 11:39
Veður og veira... það vorar að lokum Heilbrigðisyfirvöld stefna nú að því að bólusetja 190 þúsund landsmanna fyrir júnílok en gróft reiknað jafngildir það því að allir 35 ára og eldri verði þá bólusettir. 16.2.2021 15:18
Katrín segir einhug innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á landamærunum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir einhug innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á landamærunum en heilbrigðisráðherra greindi frá því eftir ríkisstjórnarfund í morgun að enginn kæmi til landsins frá og með föstudegi án þess að geta sýnt fram á neikvætt PCR-próf á brottfararstað. 16.2.2021 12:15
Nýja barnið gæti fræðilega orðið forseti Bandaríkjanna og konungur eða drottning Alastair Bruce, sem fjallar um bresku konungsfjölskylduna fyrir Sky News, hefur velt þeim möguleika upp að annað barn Harry og Meghan, hertogahjónanna af Sussex, gæti fræðilega orðið bæði forseti Bandaríkjanna og konungur eða drottning breska samveldisins. 15.2.2021 14:17
Bóluefnið frá Pfizer fækkar einkennavaldandi smitum um 94 prósent Ef marka má rannsóknir ísrelskra heilbrigðisyfirvalda fækkar bóluefnið frá Pfizer einkennavaldandi smitum af völdum Covid-19 um 94 prósent. Niðurstöðurnar byggja á upplýsingum um 1,2 milljónir einstaklinga en helmingurinn var bólusettur. 15.2.2021 12:34
Hvetja til skimana vegna lungnakrabba: Sneiðmyndtaka greinir 70 prósent meina á frumstigum Viðamikil rannsókn á vegum bresku heilbrigðisþjónustunnar hefur leitt í ljós að með því að skima fyrir lungnakrabbameinum með tölvusneiðmyndatöku má finna 70 prósent meina áður en þau verða ólæknandi. 15.2.2021 10:49
Veitur semja við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum Veitur hafa samið við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum, í samning sem metinn er á 1,8 milljarð króna. Til stendur að skipta um 102 þúsund rafmagnsmæla, 55 þúsund varmamæla og þrjú þúsund vatnsmæla á þjónustusvæði Veitna. 15.2.2021 10:03
Vilja veita yfirmanni útlendingamála heimild til að banna fólki að fara Samtök málflutningsmanna í Hong Kong hafa gagnrýnt tillögu stjórnvalda um að veita yfirmanni útlendingamála vald til að koma í veg fyrir að einstaklingar yfirgefi borgina. Ákvörðunarvald hans myndi bæði eiga við um íbúa og ferðalanga. 13.2.2021 14:31
Þorpsbúar telja líklegt að Sadpara hafi freistað þess að bjarga félögum sínum Íbúar í þorpinu hans Ali Sadpara, sem nú er leitað á K2 ásamt John Snorra Sigurjónssyni og Juan Pablo Mohr, telja líklegast að annar félaga hans hafi slasast og Sadpara freistað þess að bjarga hópnum í stað þess að halda áfram niður fjallið. 13.2.2021 13:23
109 starfsmenn greinst í hópsmiti á skíðasvæði Hópsmit er komið upp á skíðasvæði í Colorado í Bandaríkjunum en að minnsta kosti 109 starfsmenn hafa greinst með Covid-19. Heilbrigðisyfirvöld segja ekki um að ræða smit vegna samskipta við kúnna, heldur samgang utan vinnu og hópbúsetu. 13.2.2021 12:17