Allir óbólusettir og hálfbólusettir velkomnir í bólusetningu Í þessari viku og næstu geta allir óbólusettir og hálfbólusettir einstaklingar 12 ára og eldri með íslenska kennitölu mætt í bólusetningu að Suðurlandsbraut 34. Bólusett er frá kl. 10 til 15 alla virka daga, með bóluefnunum frá Pfizer, Moderna og Janssen. 31.8.2021 08:31
Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum. 31.8.2021 07:51
Landsbankinn óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra stuðningsaðila Knattspyrnusambands Íslands sem krefjast þess að sambandið geri hreint fyrir sínum dyrum. Forsvarsmenn bankans óskuðu í gær eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ. 31.8.2021 07:28
Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-faraldrinum Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-19 faraldrinum en mismikið eftir löndum. Þeim fækkaði til að mynda um tæp 10 prósent í Kanada árið 2020 en um tæp 67 prósent í Japan. 31.8.2021 07:00
Gangast við því að traust samfélagsins til KSÍ sé „algjörlega horfið“ Forsvarsmenn KSÍ munu funda með öllum samstarfsaðilum sínum á næstu dögum, hlusta á sjónarmið þeirra og upplýsa um þær aðgerðir sem sambandið hyggst grípa til. Þetta kemur fram í tilkynningu sem KSÍ sendi á fjölmiðla seint í gærkvöldi. 31.8.2021 06:20
Brotist inn í níu geymslur og verðmætum stolið Brotist var inn í níu geymslur í fjölbýlishúsi í póstnúmerinu 110 í nótt. Voru hurðir spenntar upp og verðmætum stolið, meðal annars dýru rafmagnsfjallahjóli. 31.8.2021 05:55
Draga heilindi og yfirlýsingar talíbana í efa Bresk stjórnvöld draga það í efa að talíbanar muni standa við yfirlýsingar þess efnis að allir sem eiga rétt á því komist frá Afganistan heilir á húfi. Breskir hermenn hafa snúið aftur heim en Bretar hyggjast áfram aðstoða fólk við að komast burt. 30.8.2021 08:27
Fyrsta dauðsfallið á Nýja-Sjálandi sem tengt er bóluefninu frá Pfizer Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt um fyrsta dauðsfallið sem er talið tengjast bólusetningu með Covid-19 bóluefninu frá Pfizer. Eftirlitsnefnd segir konuna líklega hafa látist af völdum hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar. 30.8.2021 07:38
Eldur gleypir í sig íbúðablokk í Mílanó Að minnsta kosti 20 fengu reykeitrun þegar eldur breiddist út um 20 hæða íbúðablokk í Mílanó í gær. Ekki er vitað um dauðsföll en slökkviliðsmenn fóru á milli hæða og börðu á dyr til að freista þess að koma öllum út. 30.8.2021 06:55
Íbúar New Orleans án rafmagns Íbúar borgarinnar New Orleans í Bandaríkjunum eru án rafmagns, eftir að fellibylurinn Ída gekk yfir Louisiana. Vindhraðinn Ídu var allt að 240 km/klst þegar fellibylurinn gekk á land og þeim sem ekki flúðu áður hefur verið ráðlagt að halda kyrru fyrir. 30.8.2021 06:33